Karlmenn við kennslu yngri barna

Fréttir|15. desember 2014

Eins og allir vita er nauðsynlegt að fjölga leikskólakennurum. Um 1.300 leikskólakennara vantar til að uppfylla lög um menntun og ráðningu kennara, en þau kveða á um að 2/3 þeirra sem sinna uppeldi og menntun í leikskólum eigi að hafa leyfisbréf til kennslu á leikskólastigi. Leikskólastigið hefur þróast hratt sem skólastig og leikskólum fjölgað ört. Um 98 prósent barna, á aldrinum tveggja til sex ára sækja nú leikskóla. Mjög mikilvægt er því að fjölga leikskólakennurum af báðum kynjum.

Nú, á árinu 2014, er um eitt prósent þeirra sem hafa leyfisbréf til kennslu á leikskólastigi og kenna á því stigi karlmenn. Hlutfall karlkyns leikskólakennara hefur haldist óbreytt frá árinu 1997. Ef við tökum með þá sem hafa aðra háskólamenntun þá eru karlmenn um þrjú prósent og ef við skoðum allt starfsfólk leikskóla þá eru karlmenn um fimm prósent hópsins.

Undirritaður sat á dögunum ráðstefnu í Kraká í Póllandi um karlmenn við yngri barna kennslu. Ráðstefnan var skipulögð af samtökum sem kalla sig Man in Childcare. Á ráðstefnunni var samankomið áhugafólk um fjölgun karlkennara í yngri barna kennslu; ráðstefnugestir voru af báðum kynjum og frá mörgum löndum.

Eins og við var að búast eru þjóðir á misjöfnum stað í umræðunni um karlmenn við kennslu yngri barna. Áberandi var hve umræðan í Póllandi er stutt á veg komin. Umræðan á Íslandi er miklu þroskaðri en víðast hvar. Í Póllandi er enn verið að ræða hvort karlmenn eigi yfir höfuð að sinna yngri barna kennslu. Hér á landi er samfélagið sammála um að fjölga beri kalmönnum í yngri barna kennslu, þótt lítið sé verið að gera markvisst í þeim málum. Norðmenn hafa með langtímaátaki náð að fjölga karlmönnum í kennslu á leikskólastiginu. Karlar voru um 10 prósent þeirra sem kenndu á leikskólastiginu þegar best lét. Fram kom að Norðmenn hafa miklar áhyggjur af fækkun karlkennara í stéttinni. Þeir tengja það beint við að skrúfað var fyrir fjármagn til málaflokksins. Fleiri höfðu sömu sögu að segja.

Svo virðist sem hægt sé að ná árangri ef unnið er markvisst og nægilegt fjármagn fylgir. Segja má að hér á landi sé vandamálið tvíþætt; annars vegar að fá karlmenn í störf leiðbeinenda á leikskólum og hins vegar að búa þannig um hnúta að þeir sjái kennslu á leikskólastigi sem framtíðarstarf og mennti sig í leikskólakennarafræðum.

Við fundum fyrir því að fundarmenn öfunduðu okkur verulega af þeirri staðreynd að hér á landi hafa leikskólakennarar og grunnskólakennarar sömu grunnlaun. Slík staða var að mati fundarmanna kjörin leið til að fjölga leikskólakennurum af báðum kynjum. Við höfum margt með okkur og í raun eru kjöraðstæður hérlendis til að fjölga leikskólakennurum af báðum kynjum. Umræðan er nokkuð þroskuð og launastaðan jöfn hjá leik og grunnskólakennurum, einnig er menntunarkrafan sú sama. Hins vegar mun fjölgunin ekki gerast af sjálfu sér. Til þess þarf markvisst langtímaátak allra hagmunaaðila og fjármagn þarf að vera tryggt í málaflokkinn. Næsta skref í baráttunni er að ná eyrum hagsmunaaðila og tryggja fjármagn í það langtímaverkefni sem fjölgun leikskólakennara af báðum kynjum er.

Haraldur F. Gíslason, formaður Félags leikskólakennara.

 

Haraldur og Hörður Svavarsson fjalla auk
þess um þetta málefni í nýjustu Skólavörðunni.