Karlar í yngri barna kennslu
Borgarstjóri vill gera aðgerðaáætlun með FL og FSL um hvernig fjölga megi körlum í leikskólakennslu. Velferðarráðherra segir að mögulega sé hægt að veita auknu fjármagni til leikskóla þar sem hlutfall karla meðal kennara er hátt.
„Aðeins um eitt prósent leikskólakennara eru karlar. Það er staðreynd sem við getum ekki litið framhjá,“ sagði Dagur B. Eggertsson borgarstjóri í ávarpi á málþinginu „Karlar í yngri barna kennslu“ föstudaginn 9. október síðastliðinn. Þar var þessi staða einmitt til umræðu, og hvað hægt væri að gera til að breyta ástandinu.
Dagur byrjaði á að ræða hvernig það var að ganga í leikskóla í Osló, þar sem allt önnur mynd blasti við. „Þar var helmingur kennaranna karlar og stundum vel það, þeir voru gjarnan síðhærðir með skegg enda var þetta á hippaárunum. Uppáhalds leikskólakennarinn minn hét Gisle, hann var maður mikill vexti með gríðarlegt yfirvaraskegg og fór stundum í sendiferðir og þá fékk maður jafnvel að hanga með honum, jafnvel í búðir þar sem var mikil reykelsislykt. En hann var gríðarlega hlýr og góður náungi eins og reyndar allir leikskólakennararnir þarna, í minningunni allavega. Hann var ekki menntaður leikskólakennari frekar en kannski margir sem þarna unnu. Ég komst að því seinna að hátt hlutfall karla á leikskólum í Noregi var vegna þess að þeir þurftu að afplána samfélagsskyldu ef þeir neituðu að fara í herinn... Þannig að þetta voru mjúku mennirnir, friðelskandi hipparnir og það voru auðvitað alger forréttindi að alast upp í kringum þessa stráka, því þó manni hafi fundist þetta karlar þá voru þeir líklega bara um tvítugt...“.
Engin kvenna- eða karlastörf
Borgarstjóri ætlar á næstunni að beita sér fyrir því að gerð verði aðgerðaáætlun fyrir Reykjavík um hvernig fjölga megi körlum í hópi leikskólakennara.
Þrátt fyrir að borgarstjóri, sem og fleiri frummælendur á ráðstefnunni, hafi slegið á létta strengi í ávörpum sínum var öllum ljóst að um er að ræða mikið alvörumál. Það kom bersýnilega fram í orðum Eyglóar Harðardóttur félagsmálaráðherra sem gerði launamun kynjanna að umræðuefni. Hún benti á að þrátt fyrir að áratugir séu síðan sett voru lög til að útrýma kynbundnum launamun sé hann ennþá staðreynd hér á landi. Það rakti hún meðal annars til kynjaskiptingar vinnumarkaðarins. „Besta og árangursríkasta lausnin til að losna við kynbundinn launamun er einfaldlega að vera ekki með kvenna- eða karlastörf,“ sagði hún og bætti við að hægt væri að búa til fjárhagslegan hvata til að fá stjórnendur leikskóla til að jafna kynjahlutfallið í starfsmannahópnum. Eygló tók sem dæmi leið sem farin hefur verið í Noregi.
„Þar er það hreint og beint tengt hluta fjárveitinga til viðkomandi stofnana hvernig þær standa sig í því að jafna kynjahlutföllin. Það er verið að umbuna fjárhagslega þeim leikskólum sem vinna markvisst að því að jafna kynjahlutföllin. Þeir telja það svo mikilvægt, að það er tengt þessari undirstöðu rekstrarins, peningunum,“ sagði Eygló en benti einnig á að það myndi ekki duga,heldur þyrfti að gera fleira. „Vera með markvissa starfsmannastefnu sem gengur út á að ráða inn karla í þessi störf. Huga að því, hvort sem við erum að tala um leik- eða grunnskólana, umönnunarstörfin sem sveitarfélögin halda líka utan um eins og heimaþjónustuna, eða bara velferðarsviðin í heild sinni, að vinna markvisst að því að leita uppi karla og ráða þá inn. Fyrsta skrefið getur snúið að sumarstörfunum, þannig að karlar átti sig á því hvað þetta eru spennandi og skemmtileg störf og við þurfum helst að ná þeim áður en þeir taka ákvörðun um í hvaða nám þeir ætli í framhaldinu“.
Áhugaverður markhópur
Borgarstjóri hafði einnig velt því fyrir sér hvað hægt væri að gera. Hans innlegg í umræðuna var meðal annars að benda á hóp ungra karlmanna sem mögulega hefði áhuga á að leggja leikskólakennarastarfið fyrir sig. „Ég sagði að karlar væru eitt prósent leikskólakennara. Karlar eru reyndar 8,3% starfsfólks á leikskólum, 135 á móti rösklega 1600 konum í borginni. Karlar eru svo í 19,4% stöðugilda í grunnskólum eða 485 á móti um 1900 konum. Í frístundastarfinu er hlutfallið hærra. Þar er það 40% - 290 karlar á móti 470 konum. Þetta er stundum yngri hópur og ég hef velt því fyrir mér hvort þarna sé kominn ákveðinn markhópur. Þetta eru ungir, sprækir strákar og karlar sem hafa áhuga á að vinna með krökkum og ef við ættum að „targetera“ einhvern hóp þá gæti þarna verið áhugaverður markhópur,“ sagði Dagur B. Eggertsson.
Klisjurnar
Eygló Harðardóttir og Sigurður Sigurjónsson voru meðal frummælenda á fundinum.
Sigurður Sigurjónsson, varaformaður Félags stjórnenda leikskóla, var einn þeirra sem ávarpaði fundinn. Hann taldi upp nokkrar klisjur sem reglulega heyrast í umræðunni um af hverju karlmenn velja sér ekki leikskólann sem framtíðarvinnustað. Þær eru meðal annars að þar sem konur ganga með börnin og gefa þeim brjóst sé barnauppeldi þeim eðlislægara en körlunum. Einnig að karlar óttist að fá á sig ásakanir um kynferðislegt ofbeldi, og svo er það klisjan um hommana. „Það er auðvitað staðreynd að samkynhneigðir menn velja kennslu ungra barna sem framtíðarstarf. En ég held að það sé bara í sama hlutfalli og aðrir karlmenn,“ sagði Sigurður.
Hinar klisjurnar eru alveg jafn fráleitar. „Ég man ekki eftir þeim tilfellum þar sem karlmaður, eða bara leikskólakennari, hefur verið ásakaður um brot gegn börnum.“ Hann bætti við að þessar klisjur heyrðust reglulega, og það væri ómögulegt að átta sig á hversu mikil áhrif þær hefði á að karlmenn velji sér síður leikskólakennslu sem framtíðarstarf. Þetta þurfi engu að síður að hafa í huga þegar málið er rætt.
Karlar en ekki kerlingar
Sverrir Jörstad Sverrisson átti kjarnyrtasta innlegg fundarins.
Kjarnyrtasta innleggið í umræðuna kom frá Sverri Jörstad Sverrissyni, aðstoðarleikskólastjóra á leikskólanum Stekkjarási í Hafnarfirði, sem beindi orðum sínum að þeim konum sem sátu fundinn. „Það sem ég hef rekið mig á og mér finnst skipta máli er ábyrgðin sem fylgir því að ráða karlmenn inn á leikskóla, og það er sú ábyrgð sem fylgir því að hlutirnir þurfa að breytast. Við getum ekki bara ráðið inn karlmenn af því að það er smart og flott. Ef við tökum inn karlmenn á leikskóla þá verðum við líka að axla þá ábyrgð að þeir hafi áhrif og þeir verða að taka pláss. Hlutirnir breytast og þeir koma með aðrar áherslur, og þið stúlkur verðið aðeins að bakka. Þið verðið að hleypa viðhorfum karlmannanna inn í leikskólann. Það er hluti af því að gera leikskólann að meira aðlaðandi starfsumhverfi fyrir stráka og það er það að þeir upplifi að það sé pláss fyrir þá. Við höfum ekkert gagn af því að fjölga karlmönnum ef þeir eiga bara að vera eins og hverjar aðrar kerlingar."
Orð til alls fyrst
Umræðan um þetta þarfa mál mun halda áfram. Til dæmis munu Félag leikskólakennara og Félag stjórnenda leikskóla efna til ráðstefnu um „karla í yngri barna kennslu" á Grand hóteli föstudaginn 13. febrúar 2016. Yfirskrift og nánari dagskrá verða auglýst síðar, en áhugasamir eru beðnir að taka daginn frá. Í næstu Skólavörðu verður málið einnig til umræðu, þó með víðari skírskotun, því Kennarasambandið hefur nú tekið saman tölur um kynjaþróun í kennarastétt auk þess sem hagfræðingur KÍ hefur reiknað út hvernig kynjahlutfallið verður að óbreyttu innann fárra ára. Ljóst er að eitthvað þarf að gera og að orð eru til alls fyrst. Miðað við yfirlýsingar Dags B. Eggertssonar á málþinginu er ástæða til að ætla að svo verði, en þegar hann kvaddi þátttakendur í lok fundar beindi hann orðum sínum að formanni Félags leikskólakennara, og sagði: „Ég er tilbúinn að taka ykkur á orðinu og setjast yfir það í samvinnu við félagið að gera aðgerðaáætlun fyrir Reykjavík og sjá hvað er hægt að finna út úr þessu."
Greinin var birt í 6. tölublaði Skólavörðunnar sem kom út 3. nóvember 2015. Hægt er að lesa Skólavörðuna hér.