Kanntu sögu að segja?

Menntamálaráðuneytið undirbýr ráðstefnu og útgáfu bókar þar sem fjallað verður um skólahald og COVID-19. Skilafrestur á sögum er 17. ágúst næstkomandi.
Mennta- og menningarmálaráðuneytið ætlar að standa fyrir ráðstefnu í Hörpu um viðbrögð íslenska menntakerfisins við þrengingum í skólastarfi vegna samkomubanns af völdum COVID-19 faraldursins. Ráðgert er að ráðstefnan fari fram í byrjun september.
Því er leitað til kennara, skólastjórnenda og skólafólks sem hafa sögu að segja af námi og kennslu í samkomubanni og áhrifum samkomubanns á skólastarf. Sögurnar verða nýttar í umfjöllun ráðstefnunnar og valdar sögur verða síðan efniviður í bók sem gefin verður út í kjölfarið.
Markmiðið er að draga lærdóm af því sem gert var og nýta þessa reynslu til framtíðar, íslensku menntakerfi til heilla.
„Við höfum áhuga á öllu því sem við kemur námi og kennslu á þessum tíma, en einnig öðrum þáttum sem höfðu áhrif á nemendur, foreldra, kennara, skólastjórnendur auk annarra starfsmanna skóla á öllum skólastigum. Við viljum fá sem breiðasta dreifingu sagna með bæði jákvæðum og neikvæðum upplifunum, áskorunum, lausnum og reynslu. Umfram allt höfum við áhuga á sögum sem við getum dregið lærdóm af,“ segir í tilkynningu frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu.
Fyrirkomulagið
- Sögunum má skila á íslensku eða ensku á netfangið sogur@mrn.is fyrir 17. ágúst 2020.
- Formið er frjálst; ritaður texti, myndband, hljóðupptaka, ljósmyndir eða annað form.
- Sögurnar mega vera nafnlausar en staða sögumanns þarf að koma fram (kennari, skólastjórnandi, skólastig, landsvæði).
- Æskileg lengd er allt að 300-600 orð í rituðum texta eða allt að 3 mínútur ef um myndband eða hljóðrás er að ræða.
Til að skýra betur hvers konar sögur við viljum höfum við sett saman stuttan lista af áherslum en ykkur er heimilt að fjalla um hvað eina sem ykkur liggur á hjarta tengt COVID-19 og menntun.
Kennarar
- Áskoranir
Nám og kennsla
Nemendur – stuðningur o.fl.
Starfsaðstæður
Foreldrasamstarf
Áhrif til framtíðar - lærdómur
Skólastjórnendur
- Áskoranir
Nám og kennsla
Starfsaðstæður og skipulag skólastarfs
Áhrif til framtíðar - lærdómur
Náms- og starfsráðgjafar
- Áskoranir
Nemendur – stuðningur o.fl.
Sértækar aðstæður
Áhrif til framtíðar – lærdómur