Kallað eftir tilnefningum til Orðsporsins 2026
Fréttir|26. janúar 2026

Veistu um framúrskarandi skólastarf í leikskólum landsins? Hvatningarverðlaun leikskólans verða veitt í þrettánda sinn á degi leikskólans.
Valnefnd um Orðsporið 2026, hvatningarverðlaun leikskólastigins, auglýsir eftir tilnefningum. Verðlaunin eru veitt fyrir framúrskarandi skólastarf eða umbætur og þróun í menntamálum eða í kennsluháttum á leikskólastiginu.
Veiting Orðsporsins er fastur liður á Degi leikskólans, sem er fagnað um allt land 6. febrúar. Verðlaunin hafa verið veitt frá árinu 2013, eða ellefu sinnum. COVID-árið 2020 er þar undanskilið en þá féllu verðlaunin niður.
Félagsfólk og aðrir velunnarar leikskólans eru hvött til að senda inn tilnefningar og er frestur til 2. febrúar. Senda tilnefningu.
Þessi hafa fengið Orðsporið
- 2025 Leikskólinn Tangi
- 2024 Leikskólinn Múlaborg
- 2023 Hafnarfjarðarbær
- 2022 Leikskólinn Aðalþing
- 2021 Leikskólastigið
- 2020 Ekki veitt
- 2019 Seltjarnarnesbær
- 2018 Hörgársveit
- 2017 Framtíðarstarfið
- 2016 Ásmundur Örnólfsson aðstoðarleikskólastjóri
- 2015 Kópavogsbær og sveitarfélagið Ölfus
- 2014 Okkar mál – þróunarverkefni
- 2013 Súðavíkurhreppur / Kristín Dýrfjörð og Margrét Pála Ólafsdóttir