Kallað eftir nýjum kennurum í rannsókn

Rannsóknarhópur NTI vill leggja spurningakönnun fyrir kennara, sem hafa leyfisbréf og útskrifuðust á árabilinu 2022-2025.
Hópur rannsakenda og fulltrúa kennarasambanda sem mynda Nordic Teacher Induction and Mentoring (NTI) samstarfshóp, þvert á háskóla og kennarasambönd í Danmörku, Eistlandi, Færeyjum, Finnlandi, Íslandi, Noregi og Svíþjóð, vinnur nú að rannsóknarverkefni sem ber heitið Flourishing and Becoming (NTI-FAB).
Hverjir geta tekið þátt?
Rannsóknarhópurinn leitar til kennara sem eru með leyfisbréf og útskrifuðust á tímabilinu 2022 til 2025. Með því er er sjónum beint að þeim sem hafa starfað við kennslu í fjögur ár eftir útskrift.
Markmið rannsóknarinnar er að afla gagna um upplifun nýrra kennara og reynslu þeirra á fyrstu árum kennsluferilsins, auk þess að fá innsýn í hvernig starfstengd leiðsögn styður nýja kennara í starfi, eykur farsæld þeirra og getur dregið úr líkum á brotthvarfi úr starfi á fyrstu starfsárunum.
Könnunin er nafnlaus og ekki verður hægt að rekja svör til einstaklinga.