Kallað eftir framboðum í trúnaðarstörf hjá FG

Kjörnefnd Félags grunnskólakennara kallar eftir framboðum í þrjár nefndir félagsins.
Samkvæmt lögum FG er hér með auglýst eftir framboðum og/eða tilnefningum í samninganefnd, skólamálanefnd og kjörnefnd FG fyrir næsta kjörtímabil frá aðalfundi 2026 til aðalfundar 2030.
Á vef félagsins er hægt að kynna sér lög FG varðandi nefndir.
Óskað er eftir framboðum í:
- Samninganefnd 10 fulltrúa (5 aðal og 5 vara)
- Skólamálanefnd 11 fulltrúa (6 aðal og 5 vara)
- Kjörnefnd 6 fulltrúa (3 aðal og 3 vara)
Framboðum og tilnefningum í trúnaðarstörf skal skila fyrir klukkan tólf á hádegi þriðjudaginn 5. maí 2026. Þetta á líka við um þau sem hyggjast bjóða sig fram aftur.
Tilkynning um framboð sendist á kjornefndfg@ki.is.
Í póstinum skal koma fram nafn, starfsheiti, vinnustaður og kennitala. Mynd þarf að fylgja framboðstilkynningu.
Kosningarnar
Atkvæðamagn ræður því hverjir hljóta kjör sem aðalfulltrúar og hverjir verða varafulltrúar.
- Atkvæðagreiðsla hefst klukkan 12 á hádegi þriðjudaginn 19. maí
- Atkvæðagreiðslu lýkur klukkan 12 á hádegi föstudaginn 22. maí.
Með kveðju,
kjörnefnd Félags grunnskólakennara
Páll Erlingsson, Áslandsskóla
Inga Lóa Hannesdóttir, Grunnskólanum í Hveragerði
Erla Rán Kjartansdóttir, Brekkuskóla
Kjörnefnd FG skipa
Páll Erlingsson, Áslandsskóla