Kallað eftir erindum

Fréttir|13. janúar 2015

Málþing um náttúrufræðimenntun verður haldið 17.-18. apríl 2015 í Reykjavík á vegum Rannsóknarstofu um náttúrufræðimenntun (RAUN) við Menntavísindasvið HÍ.

Fyrir hverja er málþingið?

Málþingið er ætlað öllum sem koma að menntun í náttúrufræði- og raunvísindagreinum ásamt öðrum áhugasömum. Hér með er auglýst eftir erindum á málþingið frá starfandi kennurum á öllum skólastigum, leik-, grunn-, framhalds- og háskóla, skólastjórnendum, fræðafólki, fulltrúum atvinnulífsins og öðrum áhugasömum. Með náttúrufræðimenntun er átt við öll svið innan náttúru- og raunvísinda. Efni ráðstefnunnar er sniðið að öllum skólastigum.

Hvernig erindum er kallað eftir?

Kallað er eftir erindum sem snúa að náttúrufræðimenntun. Má þar m.a. nefna erindi um

  • kynningu og mat á verkefnum (kennslu- og þróunarverkefnum),
  • rannsóknir á náttúrufræðimenntun,
  • kennslufyrirkomulag, m.a. notkun nýrrar tækni,
  • verklega kennslu,
  • útikennslu og útinám,
  • markmið náttúrufræðináms,
  • nýjar námskrár,
  • framtíðarsýn og stefnu,
  • tengsl við atvinnulífið, stofnanir og umhverfi,
  • samstarf milli skóla og skólastiga,
  • náttúrufræðimenntun í kennaranámi.

Hvert er formið á erindum?

Mismunandi form verða á erindum.

  • Kynningar; hámark 20 mín. með umræðum.
  • Fræðileg erindi; hámark 20 mín með umræðum.
  • Málstofur; þrjár samtengdar kynningar með umræðum, hámark 1 klst.
  • Smiðjur; vinnustofur þar sem áhersla er lögð á virka þátttöku fólks, hámark 1 klst.
  • Básar; notaðir til kynningar með viðveru kynningaraðila.
  • Veggspjöld; verða til sýnis meðan á málþinginu stendur.

Hvernig er unnt að senda inn erindi?

Lýsing á erindi er send inn rafrænt hér: 
Frestur til að senda inn erindi er til 1. mars 2015.

Nánari upplýsingar veita Birgir U. Ásgeirsson, birgira@hi.is og Svava Pétursdóttir, svavap@hi.is hjá Háskóla Íslands.
Upplýsingar má finna á heimasíðu málþingsins