Kallað eftir endurskoðun aðalnámskrár og prófakerfis

Breytingar á almenna skólakerfinu hafa áhrif á nemendur og kallað er eftir nútímavæðingu aðalnámskrárinnar. Þetta er meðal þess sem kemur fram í niðurstöðum rannsóknar sem tónlistarkennararnir Karen Erla Karólínudóttir og Ingunn Jónsdóttir gerðu á reynslu tónlistarkennara af aðalnámskrá tónlistarskóla og samræmdu prófakerfi. Rannsóknasjóður KÍ styrkti verkefnið.
Karen Karólínudóttir (MPH) og Ingunn Jónsdóttir (MA) gerðu rannsókn á reynslu tónlistarkennara af aðalnámskrá tónlistarskóla og samræmdu prófakerfi. Rannsóknasjóður KÍ styrkti verkefnið um 1 milljón króna. Rannsókninni er lokið og þær Karólína og Ingunn hafa skilað rannsóknarskýrslu þar sem niðurstöðurnar eru greindar.
Unnið var úr gögnum sem Félag kennara og stjórnenda í tónlistarskólum safnaði saman árið 2020. Markmið rannsóknarinnar var að taka saman reynslu tónlistarkennara af aðalnámskrá og hugmyndir þeirra um umbætur. Einnig að koma þessum hugmyndum á framfæri við Menntamálaráðuneytið í gegnum Félag kennara og stjórnenda í tónlistarskólum.
Árið 2020 voru svæðisþing Félags tónlistarkennara ekki haldin með hefðbundnum hætti heldur komu kennarar saman í hljóðfærahópum til að ræða aðalnámskrá tónlistarskóla. Spurningalisti sem saminn hafði verið á vegum KÍ var hafður að leiðarljósi við umræðurnar og hann sendur til allra tónlistarkennara á landinu. Rannsakendur fengu gögnin í hendurnar árið 2022 og voru gangagrunnsgögn flokkuð og komið á tölulegt form og samantektir umræðuhópa komið í samfelldan texta.
Helstu niðurstöður
Karen og Ingunn komust að því að þátttakendur kalla eftir endurskoðun aðalnámskrár og samræmds prófakerfis.
„Samræming sem átti að ná fram með prófakerfinu hefur ekki tekist að öllu leiyi og flestir kennarar hafa óskir um breytingar á prófþætti kerfisins. Breytingar á almenna skólakerfinu hafa áhrif á nemendur og kallað er eftir nútímavæðingu aðalnámskrárinnar.
Niðurstöðurnar benda til þess að flestir kennarar nýti sér greinanámskrárnar en þær henti ekki öllum nemendum. Kerfið sé í heild sinni heldur þungt fyrir meðalnemanda og sérstaklega eru vísbendingar um að tónstigaþátturinn sé of íþyngjandi fyrir nemendur.
Í heildina var samhljómur meðal þátttakenda um vankanta námskrárinnar en heyra mátti að þau sjónarmið togast á um kosti kerfisins sem er að skila nemendum sem eru vel undirbúnir fyrir háskólanám í tónlist eins og flestum þátttakendum finnst kerfið gera núna, eða hvort fleiri eigi að hafa sína hillu í kerfi sem þjónar öllum tónlistarnemendum í landinu, ekki bara þeim sem stefna á atvinnumennsku í tónlist," skrifa Karólína og Ingunn.