Kallað eftir ágripum á Menntakviku

Ákveðið hefur verið að lengja frest til að skila inn ágripi til 15. ágúst næstkomandi. Menntastefna og farsæld er aðalþema að þessu sinni.
Tengsl menntastefnu og farsældar verður efni aðalerindis og opnunarmálstofu hinnar árlegu Menntakviku sem fram fer dagana 28. og 29. september næstkomandi.
Frestur til að skila inn ágripi og málstofum er til 15. ágúst. Einkum er kallað eftir erindum tengdum aðalþemanum; menntastefnu og farsæld, ásamt öðrum fjölbreyttum viðfangsefnum sem varpa ljósi á grósku á sviði menntamála.
Menntakvikan er langt í í frá ný af nálinni en hún verður nú haldin í 27. skipti.
Menntakvika leiðir saman á hverju ári fjölda fagfólks og hagsmunaaðila sem láta sig menntun varða. Ráðstefnan fer fram að hausti ár hvert og þar eru kynntar rannsóknir um það sem efst er á baugi í menntavísindum hér á landi .
- Hægt verður að fylgjast með málstofum í gegnum Zoom og mun hlekkur birtast á vefsíðu stuttu fyrir viðburð.
- Skila inn ágripi