Kall eftir ágripum á Menntakviku 2025

Hin árlega ráðstefna Menntavísindasviðs, Menntakvika, fer fram dagana 2. til 4. október næstkomandi. Frestur til að taka þátt og skila inn ágripi er 30. júní næstkomandi.
Menntakvika fer fram í Sögu, nýju húsi Menntavísindasviðs, 2. til 4. október næstkomandi. Það er stutt í stórafmæli Menntakviku en ráðstefnan í haust verður haldin í 29. skipti.
Yfirskrift Menntakviku í ár er Skapandi leiðir í skóla- og frístundastarfi: Mótum nýja framtíð.
Markmið ráðstefnunnar Menntakviku er að kynna og miðla því sem efst er á baugi í menntavísindum og tengdum sviðum hverju sinni. Á sama tíma verður flutningi Menntavísindasviðs í Sögu fagnað og gestum verður boðið að skoða sig um og fræðast um þá möguleika sem húsnæðið hefur upp á að bjóða.
Á laugardeginum 4. október verður boðið upp á skapandi smiðjur og kynningar og gefst dýrmætt tækifæri til samvinnu fræða og fagvettvangs.
Menntavísindasvið býður öllum sem stunda rannsóknir í menntavísindum og tengdum fagsviðum til þátttöku á ráðstefnunni, sem og öllu starfsfólki annarra stofnana sem rannsaka eða vinna með viðeigandi málefni. Hægt verður að fylgjast með málstofunum á Zoom, málstofurnar verða ekki teknar upp.
Ráðstefnan er öllum opin og ókeypis.
Innsending ágripa
Eins og undanfarin ár er tekið við ágripum fyrir einstaklingserindi, skipulagðar málstofur og veggspjöld. Í ár bjóðum við upp á nýjung: Skapandi smiðjur og kynningar sem haldnar verða laugardaginn 4. október.
- Kynning: Opinn bás þar sem þú kynnir hugmynd, verkfæri og átt opið samtal við gesti og gangandi (2-3 klst.).
- Smiðja: Þú býður þátttakendum að kynnast og prófa tól, aðferðir, hugmyndir eða tækni sem nýtist í skóla- og frístundastarfi eða rannsóknum (30-45 mínútur).
Vinsamlegast kynnið ykkur leiðbeiningar um innsendingu ágripa á vef Menntakviku, með því að fylgja slóðinni hér:
https://menntakvika.hi.is/senda-inn-agrip/
Skilafrestur ágripa er 30. júní 2025