Kaflaskil hjá Vísindasjóði FL og FSL

Fréttir|1. febrúar 2023

„Að horfa til baka á þessum tímamótum eru gleði og þakklæti þær tilfinningar sem eru fyrirferðarmestar. Ég hef unnið með allskonar fólki sem ég hef lært af og ég treysti að það hafi verið gagnkvæmt.“ Kaflaskil urðu í gær hjá Vísindasjóði FL og FSL þegar Anna Kristmundsdóttir lét af formennsku og störfum hjá sjóðnum eftir tólf ára setu.

Anna hefur starfað í þágu Kennarasambandsins og félagsmanna þess í rúm þrjátíu ár. Hún hafði þetta að segja á þessum tímamótum:  

„Þegar ég hætti nú setu í stjórn Vís FL og FSL eftir líklega tólf ár er eðlilegt að horfa til baka. Ég hef allt frá því ég hóf störf sem fóstra haustið 1991 sinnt hinum og þessum störfum fyrir mitt félag og það hefur verið sjálfsagt. Að horfa til baka á þessum tímamótum eru gleði og þakklæti þær tilfinningar sem eru fyrirferðarmestar. Ég hef unnið með allskonar fólki sem ég hef lært af og ég treysti að það hafi verið gagnkvæmt. Þakka fyrir það traust sem mér hefur verið sýnt.“

Bergljót Einarsdóttir tók við af Önnu í Vísindasjóði FL og FSL. Auk Bergljótar sitja Bjarni Ómar Haraldsson, Heiðbjört Gunnólfsdóttir og Lúðvík Hjalti Jónsson í sjóðnum.

Markmið Vísindasjóðs Félags leikskólakennara og Félags stjórnenda leikskóla er að tryggja fjárhagslegan grundvöll símenntunar og endurmenntunar fyrir félagsmenn í tengslum við störf þeirra, þannig að komið sé til móts við þarfir og óskir þeirra fyrir endur- og viðbótarmenntun eftir því sem kostur er. Félagsmenn í FL og FSL sem hafa tekið laun eftir kjarasamningum félagana, í 3 mánuði, eiga aðild að Vísindasjóði FL og FSL.