Kæru kollegar

Fréttir|29. desember 2022
Pistill

Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ, skrifar til félagsmanna í tilefni áramótanna. „Skólastjórnendur og kennarar eru þeir sem leiða starfið með nemendum og fyrir löngu orðið tímabært að áherslan liggi í því að tala við þá beint frekar en að tala um þá og hvað þeir eigi að gera," skrifar Magnús Þór meðal annars í greininni.

Árið 2022 var sannarlega viðburðaríkt hjá íslensku skólafólki. Upphaf ársins og fyrstu tveir mánuðirnir mörkuðust af ákvörðun ríkisstjórnarinnar að halda skyldi öllum skólum opnum í stærstu Covid19-bylgjunni, meðal annars með að markmiði að með því tækist að að byggja upp ónæmi í samfélaginu öllu.

Við skulum vona að það skref hafi verið það síðasta sem við tókum í baráttunni við þennan faraldur sem markaði skólastarf á Íslandi um tveggja ára skeið, það tók sannarlega á um leið og frammistaða kennara og skólastjórnenda á því tímabili sýndi öllum hvers við erum megnug.

Þessi ákvörðun ríkisstjórnar var sannarlega umdeild. Hluti þeirrar vinnu sem sett var af stað fólst í því að styrkja samtal mennta- og barnamálaráðuneytis við okkur í KÍ. Haldnir voru reglubundnir fundir um stöðu mála, fyrst í stað má segja að kjarninn hafi verið faraldurinn en þegar á janúarmánuð leið kom líka upp umræða um ólíka þætti í skólastarfi. Við ræddum þar um mögulegt þekkingargap sem gæti fylgt óreglubundnu skólastarfi og ráðuneytið fór yfir umræðu um farsæld barna í skólastarfi.

Þetta samtal hefur haldið áfram árið allt. Ég held að mér leyfist að segja það að umræða um skólamál hafi sjaldan farið eins hátt og á árinu 2022. Ráðuneytið hefur allt þetta ár leitað eftir samræðu beint við KÍ varðandi þær áherslur sem horft er til í menntamálum á næstu árum. Það er auðvitað lykilatriði ef árangur á að nást!

Skólastjórnendur og kennarar eru þeir sem leiða starfið með nemendum og fyrir löngu orðið tímabært að áherslan liggi í því að tala við þá beint frekar en að tala um þá og hvað þeir eigi að gera. Ég ber mikla von í brjósti að þetta samtal verði enn meira í framtíðinni og styrki skólastarf á Íslandi og bæti menntun enn frekar, enda liggur farsældin í skólakerfinu helst í því að allir fái þar gæðamenntun sem nýtist samfélaginu til heilla.

Það er nefnilega þannig að vinna okkar kennara og skólastjórnenda er framlínustarf samfélags, líka þegar heimsfaraldri lýkur.

Umræðan í samfélaginu um skólamál hefur í gegnum tíðina oft farið inn á svið einstakra atriða innan skóla, of oft hafa neikvæð viðfangsefni skólanna verið þar í forgrunni, en stærri myndin ekki fengið þá athygli sem henni ber. Árið 2022 var kosningaár hjá sveitarfélögum landsins, en yfirgnæfandi rekstrarþáttur þeirra er skólastarf í leik-, tónlistar- og grunnskólum. Það fór alveg fyrir umræðu um skólamál en þar fannst mér þó skorta aðeins á umræðu um heildarmyndina og þann ávinning sem öflugt skólastarf færir sínu samfélagi. Kjörtímabilið er nýhafið og við í KÍ munum sannarlega halda merki skólanna á lofti eins og endranær. Fram undan eru samtöl við nýja forystu Sambands íslenskra sveitarfélaga um hvernig samstarfi verði best háttað okkar á milli, þar eins og í ráðuneyti greinum við samstarfsvilja.

Árið 2023 er fram undan. Stærsta verkefni þess árs er án vafa kjarasamningagerð. Fyrstu kjarasamningar aðildarfélaga KÍ renna út í lok mars og þaðan frá losna samningar allra félaganna. Nú þessa dagana eru kjarasamningar á almennum markaði að líta dagsins ljós og eins og oft áður þá hefur það þýtt að umræðan verður strax um það að opinberu stéttarfélögin verði að fylgja þeim línum sem þar eru dregnar upp.

Auðvitað erum við ábyrg, en það er stórt „EN“ í okkar afstöðu. Árið 2016 skrifuðum við í KÍ ásamt öðrum stéttarfélögum á opinberum markaði undir samkomulag um það að við gæfum eftir ríkisábyrgð lífeyrisréttinda okkar og aðlöguðum kerfið að almennum markaði. Við að gefa eftir þau réttindi var okkur lofað að farið yrði í vinnu við að jafna launakjör milli opinbera markaðarins og hins almenna. Sem fullt erindi er og var til!

Starfskjör okkar og vinnuumhverfi þarf að búa þann sess sem fylgir mikilvægi starfsins í samfélaginu. Öll sú umræða sem farið hefur fram um skólamál á árinu 2022 hefur beint sviðsljósinu að hlutverki skólans í samfélaginu og lyklarnir að árangri liggja í höndum kennara og skólastjórnenda.

Nú sex árum seinna hefur það loforð ekki verið uppfyllt og okkur í KÍ finnst sannarlega nóg komið af biðinni. Við höfum því gert okkar viðsemjendum það algerlega ljóst að þar liggja forsendur kjarasamningsgerðar við aðildarfélög KÍ á árinu 2023, það verður einfaldlega engin biðlund lengur. Ágóði almenna markaðarins hófst strax við undirritun og það er óþolandi að enn sé verið að draga útfærslu til opinberra starfsmanna á langinn og við munum gera allt sem þarf til að þeirri bið ljúki á næsta ári.

Það er nefnilega þannig að vinna okkar kennara og skólastjórnenda er framlínustarf samfélags, líka þegar heimsfaraldri lýkur. Starfskjör okkar og vinnuumhverfi þarf að búa þann sess sem fylgir mikilvægi starfsins í samfélaginu. Öll sú umræða sem farið hefur fram um skólamál á árinu 2022 hefur beint sviðsljósinu að hlutverki skólans í samfélaginu og lyklarnir að árangri liggja í höndum kennara og skólastjórnenda.

Ég hlakka til samstarfs við ykkur á árinu 2023, fullviss um það að við munum fara samstíga inn í þau verkefni sem falla okkur í hendi, skólastarfi Íslands til heilla.

Með kveðju, 
Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ