Kæru félagar

Hanna Björg Vilhjálmsdóttir, frambjóðandi til formanns Kennarasambands Íslands, skrifar.
Ég hef lengi velt því fyrir mér að bjóða mig fram til formennsku í KÍ, svo þetta er hvorki skyndiákvörðun né hugdetta, heldur ígrunduð og úthugsuð niðurstaða hjá mér. Ákvörðun mín um framboð kemur eftir langa meðgöngu um það hvernig ég vil sjá stéttina mína þróast og á hvaða stað ég vil sjá hana í samfélaginu.
Forysta kennara á að hafa ákveðin einkenni og áru í mínum huga. Faglegur leiðtogi þarf að vera sýnilegur og í nánum tengslum við grasrótina, finna og fylgjast með hjartslættinum í stétt sinni.
Mig langar til að vera hluti af forystu sem tekur þátt í að efla kennarastéttina og hefja hana til þeirrar virðingar sem hún á skilið. Að breyta orðræðunni um kennarastarfið sem oft markast af skilningsleysi og skeytingarleysi. Mig langar að veita kennurum innblástur, styrkja, styðja og valdefla þá. Ég vil vera málsvari og baráttukona fyrir hagsmunum kennara á öllum skólastigum.
Mér finnst vera kominn tími á að kona leiði kvennastéttina sem kennarar svo sannarlega eru. Frá stofnun KÍ árið 2000 hafa þrír karlar verið formenn KÍ, er ekki kominn tími á konu? Fái ég traust til þess að leiða sambandið er alveg áreiðanlegt að það munu sjást breytingar á ásýnd þess.
Ég vil vera málsvari og baráttukona fyrir hagsmunum kennara á öllum skólastigum.
Ég hefði svo gjarnan viljið koma í heimsókn í hvern og einn skóla, hlustað á ykkur, fengið tilfinningu fyrir því sem brennur á ykkur og að sjá starfsumhverfi ykkar. Það hefði verið svo mikilvægt veganesti fyrir mig. En ég er kennari eins og þið, ég er í fullu starfi og kemst því takmarkað frá eins og gefur að skilja. Kennarar taka sér ógjarnan frí frá kennslu eins og þið þekkið mætavel.
Ég er þakklát fyrir stuðninginn og þann meðbyr sem ég finn fyrir, og hvet ykkur til að kjósa og eignast fulltrúa í mér í forystu KÍ.