Kæra sig lítt um þýsku og frönsku

Sífellt færri danskir menntaskólanemar læra þýsku og frönsku. Aðgerðir menntamálayfirvalda í því skyni að auka áhuga nemenda á erlendum tungumálum, öðrum en ensku, hafa lítinn árangur borið. Fleira en áhugaleysi nemenda kemur þó til.
Sú var tíð að margir danskir menntaskólanemar höfðu erlend tungumál á efsta stigi (A-niveau) á námsáætlun sinni. Fyrir utan ensku voru þýska og franska þau tungumál sem flestir lögðu stund á. Í dag er það hins vegar einungis eitt prósent menntaskólanema sem lærir frönsku á efsta stigi og sex prósent þýsku. Nemendum sem leggja stund á þessi tvö tungumál í framhaldsnámi (háskólum og sérgreinaskólum) hefur sömuleiðis fækkað mjög á síðustu árum. Sömu sögu er að segja af ítölsku. Þetta mun leiða til þess að á næstu árum verður skortur á kennurum í þessum greinum í menntaskólum.
Samkvæmt nýlegum tölum er næstum annar hver frönskukennari í dönskum menntaskólum, og þriðji hver þýskukennari, eldri en 60 ára og nálgast því óðum starfslokaaldur. Að mati samtakanna Dansk Magisterforening (DM) er það í senn einkennilegt og alvarlegt að fáir sæki í frönsku- og þýskunám. Einkennilegt vegna þess að atvinnuhorfur fyrir fólk með tungumálakunnáttu, einkum þýsku og frönsku, eru mjög góðar. Alvarlegt sökum þess að ef ekki fást kennarar í þessar greinar verða þær ekki lengur í boði.
Og útlitið er ekki bjart. Samkvæmt tölum frá danska menntamálaráðuneytinu hafa á síðustu tíu árum útskrifast 1.211 þýskukennarar úr sérgreinaskólum og á sama tíma 150 frönskukennarar. Þetta er langt frá því að vera nóg til eðlilegrar endurnýjunar í kennarastéttinni. Í háskólunum er ástandið þannig að kandidatsnemum í þýsku, frönsku og spænsku hefur fækkað um 32 prósent frá árinu 2010, mest í frönsku en þar er fækkunin 60 prósent.
Lengi vitað hvert stefndi
Árið 2016 skrifuðu áðurnefnd samtök dönsku magisteranna bréf til Ullu Tørnæs, þáverandi ráðherra mennta og vísinda. Þar bentu samtökin á vandann varðandi tungumálakennsluna og hvöttu ráðherrann til að bregðast við. Þá var reyndar komin af stað vinna innan ráðuneytisins til að reyna að bregðast við sífellt minnkandi áhuga á námi í erlendum tungumálum.
Þegar rætt er um breytingar á skólakerfinu er þeim stundum líkt við að snúa 300 metra löngu fragtskipi, það verði ekki bara gert sisona.
Í blaðaviðtali sagði ráðherrann að lengi hefði verið vitað hvert stefndi og nefndi jafnframt að á næstu árum yrði árlega auknu fé veitt til kennslu í erlendum tungumálum. Ulla Tørnæs sagðist jafnframt binda miklar vonir við umbæturnar sem unnið væri að og ráðherrann kallaði „reformen“. Það nafn festist í sessi. Tilgangurinn væri, sagði ráðherrann, að fá fleiri nemendur til að velja tungumál og jafnframt á hærra getustigi (niveau). Í menntaskólunum eru getustigin þrjú, efst er A og síðan B og C. Ein þeirra breytinga sem fylgdi „reformen“ var að stúdentar skyldu hafa lokið áföngum í þremur erlendum tungumálum.
Dugði ekki til
Skólaárið 2017-2018 var fyrsta árið eftir að „reformen“ tók gildi. Margir stjórnmálamenn höfðu lýst því yfir að þeir vonuðust eftir að umbæturnar yrðu til þess að fleiri nemendur veldu tungumál, gjarnan þrjú, helst á efsta eða næstefsta getustigi. Á skólaárinu 2019-2020 fjölgaði stúdentum með þrjú erlend tungumál á prófskírteininu talsvert. En þar var ekki allt sem sýndist því aukningin fólst nær öll í því að mun fleiri höfðu valið latínu á neðsta getustigi, stigi C. Nemum sem völdu þýsku, frönsku, spænsku eða ítölsku fjölgaði ekki, heldur fækkaði raunar. Í viðtali tímaritsins Gymnasieskolen við Mads Eriksen, yfirmann kennslu og rannsókna hjá samtökum atvinnurekenda, kom fram að eftirspurn eftir fólki með latínukunnáttu væri mjög lítil en framboðið yfirdrifið. „Latína er ekki það sem mest er rætt um í dönsku atvinnulífi, en nemendur á málabrautum í menntaskólum velja latínu á C stigi, þannig sleppa þeir léttar frá stærðfræði og náttúruvísindum. Þessu þarf að breyta.“
Enska, þýska, franska og spænska
Skólamál eru iðulega til umræðu á danska þinginu, Folketinget, og þingmenn spyrja ráðherra skólamála oft spjörunum úr. Fyrir nokkru óskaði Henrik Thulesen Dahl, þingmaður Danska þjóðarflokksins, eftir upplýsingum um framboð erlendra tungumála í grunnskólum. Rétt er að nefna í þessu samhengi að enska er skyldugrein grunnskólanema frá 7 ára aldri.
Samkvæmt svari ráðherra skólamála eru danskir grunnskólar 1.114 talsins. Í öllum grunnskólum landsins býðst nemendum þýskunám frá 11 ára aldri, eins og kveðið er á um í námskrá. Franska skal líka vera í boði frá sama aldri, en þó háð ákvörðun fræðsluyfirvalda í hverju skólaumdæmi.
Samkvæmt tölum sem ráðherra lét þinginu í té er franska einungis í boði í 312 skólum af 1114. Árið 2017 ákvað kennslumálaráðherra að í tilraunaskyni byðist grunnskólum landsins sá möguleiki að bjóða upp á nám í spænsku, sem hver nemandi gæti lært þrjá vetur. Einungis 23 skólar hafa notfært sér þann möguleika.
Umbæturnar hafa ekki skilað því sem til var ætlast
Á danska þinginu urðu talsverðar umræður um þær upplýsingar kennslumálaráðherrans sem nefndar voru hér að framan. Margir þingmenn lýstu yfir áhyggjum af þróun mála og hvað hægt væri að gera til að bæta úr. Í þessum umræðum sýndist sitt hverjum en allir voru sammála um að umbæturnar sem ráðist var í með „reformen“ hefðu ekki skilað því sem búist var við. Margir nefndu að grunnskólarnir hefðu mikil áhrif því þar kviknaði áhuginn fyrir tungumálum, ef rétt væri á málum haldið.
Henrik Thulesen Dahl, sá sem tók málið upp í þinginu, sagði það skoðun sína að nauðsynlegt væri að ráðast í umbætur á umbótunum (reformere reformen) og það þyrfti að gerast sem allra fyrst. Undir þetta tóku margir þingmenn.
Ekki alveg einfalt
Þegar rætt er um breytingar á skólakerfinu er þeim stundum líkt við að snúa 300 metra löngu fragtskipi, það verði ekki bara gert sisona. En þótt það taki drjúga stund að snúa fragtskipinu er það þó einungis andartak miðað við að hrinda í verk breytingum á skólakerfinu.
Skrifara þessa pistils er minnisstæður fyrirlestur sem hann hlýddi á fyrir mörgum árum, í kennsluréttindanámi sínu. Fyrirlesarinn nefndi samlíkinguna við fragtskipið og fullyrti, með dæmum, að það tæki 10 ár að koma í framkvæmd breytingum á skólakerfinu frá því að ákvörðun um að breyta væri tekin.
Ekki nóg að kunna bara ensku
Forsvarsmenn samtaka danska iðnaðarins (DI) og samtaka atvinnurekenda (DE) segja ekki duga að dönsk fyrirtæki hafi í sinni þjónustu starfsfólk sem geti einungis tjáð sig á ensku, auk dönsku. Dönsk fyrirtæki eru í miklum viðskiptum við mörg lönd í Evrópu, mest við Þýskaland, Frakkland og Spán. Í samningum við fyrirtæki í þessum löndum skiptir öllu að danska starfsfólkið kunni tungumálið sem talað er í viðkomandi landi.
„Enska er mikilvægt tungumál í samskiptum en hún dugir ekki alls staðar og við vitum að dönsk fyrirtæki hafa margoft orðið af viðskiptum vegna þessa. Fyrir utan hið praktíska er mjög jákvætt, í augum erlendra viðskiptavina, ef danskur samningamaður talar mál viðkomandi. Enska er mikilvægasta tungumálið í erlendum viðskiptum okkar en þýska er mjög mikilvæg og það er franska sömuleiðis. Og á allra síðustu árum einnig kínverska,“ sagði Mads Eriksen hjá samtökum atvinnurekenda og bætti við að kínverskumælandi Danir væru mjög eftirsóttir.