Jónína sækist eftir endurkjöri til varaformanns KÍ
Fréttir|5. desember 2025

Jónína tilkynnti framboðsnefnd KÍ um framboðið í dag.
Jónína Hauksdóttir, varaformaður Kennarasambands Íslands, sækist eftir endurkjöri til embættis varaformanns KÍ á næsta kjörtímabili, 2026 til 2030.
Hún tilkynnti framboðsnefnd KÍ um framboðið með formlegu bréfi fyrr í dag.
Jónína er núverandi varaformaður KÍ og hefur gegnt því embætti frá árinu 2022.