Jónína Hauksdóttir verður næsti varaformaður KÍ
Fréttir|13. desember 2021

Rafrænni kosningu um nýjan varaformann KÍ lauk klukkan 14 í dag.
Jónína Hauksdóttir hefur verið kjörin varaformaður Kennarasambands Íslands. Átta félagsmenn KÍ buðu sig fram í embættið og féllu atkvæði þannig.
- Guðný Maja Riba hlaut 553 atkvæði, eða 15,47%
- Hjördís B. Gestsdóttir hlaut 188 atkvæði, eða 5,26%
- Jónína Hauksdóttir hlaut 1.372 atkvæði, eða 38,38%
- Kristín Björnsdóttir hlaut 210 atkvæði, eða 5,87%
- Lára Guðrún Agnarsdóttir hlaut 124 atkvæði, eða 3,47%
- Silja Kristjánsdóttir hlaut 477 atkvæði, eða 13,34%
- Simon Cramer Larsen hlaut 378 atkvæði, eða 10,57%
- Þórunn Sif Böðvarsdóttir hlaut 197 atkvæði, eða 5,51%
- Auðir 76 eða 2,13%
Á kjörskrá voru 11.041 og greiddu 3.575 atkvæði, eða 32,38%. Atkvæðagreiðslan var rafræn, hófst klukkan 12 mánudaginn 6. desember og lauk klukkan 14 í dag.
Jónína Hauksdóttir tekur við embætti varaformanns af Önnu Maríu Gunnarsdóttur á þingi Kennarasambandsins sem fram fer í apríl á næsta ári.
