Jónína Hauksdóttir verður áfram varaformaður KÍ

Fréttir|22. desember 2025
Untitled Design (57) (1)

Frestur til að bjóða sig fram til varaformanns Kennarasambands Íslands rann út klukkan tólf í dag, mánudaginn 22. desember.

Jónína Hauksdóttir er sjálfkjörin í embætti varaformanns Kennarasambands Íslands á kjörtímabilinu 2026 til 2030. Frestur til að bjóða sig fram til varaformanns rann út á hádegi í dag og var Jónína ein um að skila inn framboði.

Jónína hefur gegnt varaformennsku í KÍ frá árinu 2022. Kjöri varaformanns fyrir næsta kjörtímabil verður lýst með formlegum hætti á 9. þingi Kennarasambandsins sem fer fram í apríl á næsta ári.