Jóladagatal á 24 tungumálum

„Opnið glugga að heiminum í desember.“ Samtökin Móðurmál kynna fjöltyngt jóladagatal sem kennarar eru hvattir til að nota í desember
Samtökin Móðurmál kynna til leiks skemmtilegt jóladagatal: Heimsins jól – fjöltyngt dagatal. Á hverjum degi í desember verður hægt að opna fyrir jólakveðju á einu af þeim 7000 tungumálum sem töluð eru í heiminum.
Í skólastarfi verður hægt að nota jóladagatalið sem hluta af vitundarvakningu um tungumál og þá auðlind sem felst í því að geta talað fleiri en eitt eða tvö tungumál. Jóladagatalið verður að finna á vef og samfélagsmiðlum undir Móðurmál – samtök um tvítyngi.
Það er öllum opið að dreifa því og nota í því samhengi sem gæti átt við. Kennarar eru hvattir til að hefja alla skóladaga í desember með því að opna “glugga” að heiminum, bera saman tungumálin, skoða hvar þau eru töluð o.s.frv. Hægt verður að láta börn og ungmenni skreyta veggi skólans með jólakveðjum á mismunandi móðurmálum.
Jóladagatalinu fylgja leiðbeiningar og hugmyndir um notkun þess í kennslustofunni. Tilgangurinn er m.a að vekja athygli á því að fjölbreytni og fjöltyngi eru mikið ríkidæmi en sú áhersla tengist bæði Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna og Barnasáttmálanum.
Heimsins jól – fjöltyngt jóladagatal er á vegum Samtakanna Móðurmáls og birtist í samstarfi við íslensku UNESCO nefndina, Vigdísarstofnun, Miðju máls og læsis skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgar, Hólabrekkuskóla og Fellaskóla.
Mikilvægir hlekkir
- Hægt er að deila vimeo-myndbandi á hverjum degi.
- Einnig er hægt að sækja myndband á Facebook-síðu Móðurmáls.
Hugmyndr um notkun í kennslu
- Hugmyndir fyrir kennara að leiðum sem hægt er að nýta í kennslu. Á þessari síðu er að finna fjölbreytt efni, svo sem leiðarvísi um stuðning við móðurmál og virkt fjöltyngi og tungumálakort.
Dæmi um leiðir sem er hægt að fara
- Hvar er tungumál dagsins talað? Skoðið t.d. Google maps.
- Hverjir og hversu margir tala tungumálið?
- Hvaða tungumálafjölskyldu tilheyrir tungumálið?
- Hvað hefur það sameiginlegt með íslensku eða öðrum tungumálum sem við þekkjum?
- Er einhver heimsþekktur sem talar tungumálið?
- Finnið jólalög á tungumálinu t.d. á Youtube.
- Skoðið á netinu eða spyrjið manneskjur sem tala tungumál dagsins, hvort einhverjar sérstakar hefðir í tengsl við jól, nýjár eða aðrar hátíðir tengist málsvæðinu.