John Dewey: Frumkvöðull í menntaheimspeki

Áhrifa bandaríska heimspekingsins og menntunarfrömuðarins John Dewey gætir enn víða um heim og ósjaldan er á hann minnst í umræðu og fræðiskrifum um menntun og nám. En hver er maðurinn?
Hver er maðurinn?
Nafn: John Dewey
Afrek: Frumkvöðull í menntaheimspeki
Fæðingarár: 1859
Dánarár: 1952
John Dewey, sem einna helst er þekktur fyrir kenningar sínar um framsækna menntun og að læra með því að framkvæma, fæddist í Vermont ríki í Bandaríkjunum árið 1859. Heimspekin átti hug hans allan og hann útskrifaðist með doktorspróf í fræðunum frá Johns Hopkins háskóla árið 1884.
Dewey starfaði sem kennari á hinum ýmsu skólastigum ásamt því að stunda sálfræðilegar rannsóknir. Mest vann hann í Michigan, Illinois og New York, þar sem hann endaði starfsævina við Columbia háskóla.
Dewey giftist heimspekingnum og kvenréttindabaráttukonunni Alice Chipman, sem varð mikill samverkamaður hans í menntunarmálum. Saman eignuðust þau sex börn. John Dewey lést 93 ára gamall árið 1952. Fjölskyldulíf hans, fólkið í kringum hann og hans eigin reynsla og athuganir voru hans mesti áhrifavaldur og uppspretta kenninga hans um menntun og heimspeki.

Legsteinn John Dewey. Gröf Dewey er eina gröfin á háskólasvæði Vermont háskóla í Burlington, Vermont, þar sem hann fæddist og ólst upp.
Nemandinn í forgrunni
Dewey var einn af frumkvöðlum verkhyggju, eða bandarísks pragmatisma, þar sem reynsla og skynjun voru grundvöllur þekkingarleitar. Hann vildi að þekkingaröflun eða nám væri virkt ferli byggt á rannsókn geranda, eða nemandans.
Nemandinn átti að vera í forgrunni, en John Dewey taldi að nemendur ættu auðveldara með að læra og væru áhugasamari og virkari þegar menntunin væri sniðin að þeirra þörfum og áhugamálum. Því ættu nemendurnir sjálfir að taka virkan þátt í að móta námsupplifun sína.

Frímerki til heiðurs John Dewey var gefið út í Bandaríkjunum árið 1968.
Framsækin menntun veigamikið framlag til menntamála
Helst lagði Dewey áherslu á gagnvirkni, reynslu, hagnýta færni og beitingu þekkingar og gagnrýnnar hugsunar, það er að segja, á framsækna menntun, og vildi fjarlægjast
hefðbundnar, einhliða kennsluaðferðir sem snerust helst um að miðla staðreyndum.
Reynslan, eða það að læra með því að framkvæma, var þungamiðjan. Dewey taldi nemendur líklegri til að öðlast dýpri og þýðingarmeiri skilning á viðfangsefnunum og nýta það sem þeir hefðu lært ef þekkingin væri hagnýt og í samhengi við raunverulegt og daglegt líf nemandans. Þannig hefði námið áhrif á vitrænan, félagslegan og tilfinningalegan þroska nemenda og færni þeirra til að laga sig að raunverulegum aðstæðum.
Lýðræði var leiðandi stef í kenningum Dewey og þar gegndi menntun lykilhlutverki, henni var ætlað að undirbúa nemendur fyrir virka, ábyrga og upplýsta þátttöku í lýðræðissamfélagi.

Mynd fengin af vef Chicago háskóla og Tilraunaskólans.
Nemendur í Tilraunaskóla John Dewey í Chicago spinna og lita ull.
Lét verkin tala
John Dewey skildi eftir sig umfangsmikið safn verka og fræðirita. Heildarútgáfa verka hans er 37 bindi og þá eru bréf og önnur ritverk eftir hann ekki talin með en í heild er hann sagður hafa skrifað um þúsund athuganir og pælingar. Dewey lét þó ekki þar við setið heldur lét hann líka reyna á kenningarnar sínar.
Hann kom hugmyndum sínum í framkvæmd með stofnun Tilraunaskólans, barnaskóla sem settur var á laggirnar í Chicago 1896. Aðeins nokkrum árum eftir stofnun skólans voru nemendur orðnir 140 og kennarar 23. Skólinn og reynsla Dewey þar hafði veruleg áhrif á menntaheimspeki hans og tilraunir til endurbóta til frambúðar.
Áhrifa John Dewey gætir víða því kenningar hans eru margar hverjar enn við lýði og eru kennurum og menntaumbótasinnum um allan heim hvatning. Dewey er enn þann dag í dag talinn einn áhrifamesti menntafrömuður Vesturlanda og arfleið hans lifir góðu lífi.
Hér fyrir neðan er hægt að sjá myndband af Youtube með brotum úr myndbandsupptökum frá Dewey og Chipman.