Jazzhrekkur eykur forvitni um jazztónlist

Jazzhrekkur er nýtt verk frá Leifi Gunnarssyni kontrabassaleikara sem ætlað er að vekja forvitni barna um jazztónlist.
Tónlistinni fylgir rafræn kennslubók með textum, lögum og nótum sem í heild mynda um hálftíma sýningu sem ætluð er elsta stigi leikskólans og yngsta stigi grunnskólans.
Verkið er byggt á kynjaverum tengdum hrekkjavökuhátíð. Öll lögin taka á einhvers konar fyrirbærum eða ævintýraheimi þeim tengdum. Markmiðið er að vekja áhuga barna á hljóðheimi og formi jazztónlistar, stílbrigði sem ekki er endilega í forgrunni hjá ungum krökkum.
Kennslubókin getur nýst til tónlistarkennslu, kennslu í leikskólum og sem kennsluefni í tónmennt hjá 1. til 4. bekk, en í bókinni er að finna hugmyndir um hvernig nýta má efnið til kennslu í leik- og grunnskólum.
Útgáfan er styrkt af Endurmenntunarsjóði Tónlistarkennara, Menningarsjóði FÍH og höfundurinn býður efnið frítt til niðurhals og notkunar, en hann vinnur ötullega að því að jafna aðgengi að menningu í sínum störfum og tónleikahaldi.
Hvar er hægt að nálgast Jazzhrekk?
Hægt er að nálgast bókina hér eða með QR-kóðanum hér fyrir neðan.

Hægt er að finna plötuna hér eða með því að skanna inn kóðann hér fyrir neðan.
