Jákvæð og falleg orka í leiklistinni

„Það eru mikil forréttindi að fá að starfa með ungu fólki,“ segir Guðfinna Gunnarsdóttir, ensku- og leiklistarkennari við FSu og viðmælandi Skólavörðunnar á Suðurlandi.
Hringferðarhópurinn átti afar ánægjulega stund í Fjölbrautaskóla Suðurlands um miðjan september og ekki annað hægt að segja en að móttökurnar hafi verið framúrskarandi. Guðmundur Björgvin Gylfason kennari leiddi hópinn um víðfeðmt húsnæði skólans og það var bæði gaman og áhugavert að sjá hið fjölbreytta nám sem er stundað í þessum stóra skóla í höfuðstað Suðurlands.
Guðfinna Gunnarsdóttir er viðmælandi Skólavörðunnar á Suðurlandi. Hún segir okkur að hún hafi starfað í FSu nær allan sinn starfsferil, eða í rúm 20 ár. Það var samt ekki endilega planið hjá Guðfinnu að verða kennari.
„Ég valdi að fara í BA-nám í ensku í Háskóla Íslands og hafði svo sem ekki hugsað málið mikið lengra. En þá gerðist það að Örlygur [Karlsson] aðstoðarskólameistari hringdi í mig og bað mig að koma og leysa af í kennslu. Ég varð að hefja störf strax því önnin var byrjuð. Ég kastaði mér í djúpu laugina og datt inn í að kenna einn áfanga,“ segir Guðfinna og bætir við að kennarastarfið hafi strax átt vel við hana. „Mér fannst þetta bara alveg frábært.“
Hlaut eldskírn í kennslu fyrir námið
Þegar B.A.-gráðan var í höfn skráði Guðfinna sig í M.Paed-nám með kennslugreinina ensku. Hún vann sem kennari í FSu á meðan hún stundaði meistaranámið. En af hverju enska?
Nú brosir Guðfinna. „Einn þráðurinn er sá að mér leiddist óskaplega í ensku í grunnskóla. Ég var á undan og það var ekki mikið í gangi fyrir nemendur sem voru komnir lengra. Önnur ástæða fyrir þessu vali var áhugi minn á bókmenntum. Ég var mikill bókaormur og las frá unga aldri mikið á ensku,“ segir Guðfinna.
Hún segist hafa verið einkar lánsöm að fá eldskírn í kennslunni áður en hún ákvað að fara í kennaranámið. „Ég vildi óska að hægt væri að búa svo um hnútana að fólk fengi að prófa kennslu áður en það færi í kennaranám. Ég held nefnilega að fólk komist tiltölulega fljótt að því hvort kennarastarfið eigi við það eða ekki.“

Við erum með stóra starfsbraut, tökum á móti öllum, erum með stórt upptökusvæði og bjóðum bæði verk- og bóknám. Auk þess er íþróttaakademía hér, hestabraut og listalína
Gjöfult að sjá nemendur vaxa og dafna
Guðfinna er Selfyssingur og því kannski ekki skrýtið að hún sé búin að vinna í FSu í rúm 20 ár. Hún segir skólann vera góðan vinnustað en vissulega hafi sumt breyst frá því hún var sjálf nemandi og byrjaði síðar að kenna.
„Kjarninn er algerlega sá sami en það sem hefur tekið breytingum er fjölbreytni í námi. Við erum með stóra starfsbraut, tökum á móti öllum, erum með stórt upptökusvæði og bjóðum bæði verk- og bóknám. Auk þess er íþróttaakademía hér, hestabraut og listalína.“
Hún segir FSu einna líkastan Verkmenntaskólanum á Akureyri ef horft er á samsetningu og fjölbreytt framboð á námsgreinum. Enskukennarinn Guðfinna fær þannig að kenna fjölbreyttum hópi nemenda.
„Það eru bara forréttindi og mér þykir gaman að kenna nemendum á öllum þrepum og krökkum sem eru í sértækum úrræðum. Þetta er gjöful vinna og maður upplifir virðisauka í náminu. Það er svo gaman að sjá nemendur sem bæta við sig, byrja neðst og stíga svo upp. Að fylgjast með þessum krökkum vaxa og dafna er ómetanlegt. Þá geri ég ekki lítið úr nemendum á öðrum sviðum, í bók- eða verknámi eða á hestabraut, allt eru þetta einstaklingar sem taka út þroska hér og það er sérlega gaman að kenna þeim.“
Tröllatrú á leiklist sem námsgrein
Guðfinna hefur alla tíð haft óbilandi áhuga á leiklist. Hún hefur verið afar liðtæk í leiklistarlífi bæjarins og svo fór á endanum að hún beitti sér fyrir því að leiklistin yrði tekin inn í FSu.
„Þetta byrjaði smátt en hefur undið upp á sig. Upphaflega, fyrir um tíu árum, kenndi ég litlum hópum á sérnámsbraut leiklist. Það gekk vel og því var ákveðið að bjóða leiklist sem valáfanga. Það hefur haldist æ síðan og sjálfri finnst mér frábært að skipta úr enskunni og fara í leiklistartíma þar sem við erum á gólfinu, gerum æfingar og skemmtilega hluti,“ segir Guðfinna.
Þú gerir ekkert einn í leiklistinni, samvinnan er allt
Guðfinna segist hafa tröllatrú á leiklist sem námsgrein. „Það ríkir ákveðið frelsi í leiklistartímum. Nemendur vinna með eigin rödd og líkamann og ævinlega í mikilli gleði. Nemendahópurinn er alltaf fjölbreyttur, sumir ætla sér lengra í leiklistinni á meðan aðrir gera þetta af áhuga einum saman eða til þess að brjóta hefðbundna námið upp.“
„Það verður til svo falleg og jákvæð orka í þessum kennslustundum, það ríkir virðing og traust sem hjálpar mörgum að fara út fyrir kassann og hætta að hafa áhyggjur af umhverfinu,“ segir Guðfinna og bætir við að annar bónuspunktur sé að krakkarnir læri samvinnu og eignist samherja í kúrsinum. „Þú gerir ekkert einn í leiklistinni, samvinnan er allt.“
Hlakkar alltaf til að mæta í vinnuna
Spurð hvernig kennari haldi sér ferskum segir Guðfinna að hún sé svo heppin að hlakka alltaf til að fara í vinnuna. „FSu er góður vinnustaður og mér finnst gaman að finna nýjar leiðir til að þjónusta nemendur, það er jú okkar hlutverk að gera það eins vel og kostur er.“
„Hér er líka kostur hvað stjórnendur og kennarar eru opnir fyrir hvers kyns framþróun og breytingum. Kennarar njóta trausts er kemur að endurmenntun og því að endurskoða ýmsa hluti í kennslunni. Kennarahópurinn hér er frjór og skemmtilegur og það skiptir miklu þegar vinnuumhverfi er metið,“ segir Guðfinna.

Kennarahópurinn hér er frjór og skemmtilegur og það skiptir miklu þegar vinnuumhverfi er metið
„Svo má ekki gleyma nemendunum, unga fólkinu. Það er svo gefandi að vera í návist ungs fólks, maður er alltaf að læra eitthvað nýtt. Samfélagið hér í FSu er mjög stórt, um 1.100 manns ef nemendur, kennarar og starfsfólk er talið saman.“
Batteríin hlaðin í námsleyfi
Önnur leið til að halda sér í formi er að fara í námsleyfi. Guðfinna sneri aftur úr slíku leyfi í haust og segist búin að hlaða batteríin vel. En hvernig varði hún tímanum í leyfinu?
„Ég reyndi að nýta tímann sem allra best og skráði mig í nám í Hagnýtri menningar-miðlun í Háskóla Íslands. Það reyndist afar áhugavert í alla staði og ég lærði marga hagnýta hluti sem nýtast mér í kennslunni. Að setjast aftur á skólabekk var líka alveg frábært. Ég keypti mér skólatösku og tók strætó í skólann. Svo var gaman að rekast á gamla nemendur á göngum Háskólans,“ segir Guðfinna.
Ég ætla að vera kennari á meðan mér þykir það gaman
Meðal hagnýtra atriða sem Guðfinna tileinkaði sér í náminu var að búa til stuttmyndir,
læra að klippa myndefni, taka upp hlaðvörp og þar fram eftir götunum. „Verkefnin fóru vel út fyrir þægindarammann stundum en þetta var stórskemmtilegt.“
En meira var gert því Guðfinna sótti þrjú námskeið í þremur evrópskum borgum; Berlín, Prag og Dublin. Þar lærði hún leiklist, samskiptafræði og hvernig hægt er að nota leiklist til að kenna inngildingu, og er þar átt við innflytjendur og heimafólk. „Þetta var mjög praktískt allt saman og mér tókst að stilla námskeiðunum erlendis þannig að þau stönguðust ekki á við námið í HÍ,“ segir Guðfinna.
Hún segist hafa sótt um þrisvar áður en hún fékk námsleyfið. „Ég var alltaf ákveðin í að freista þess að fá námsleyfi þegar starferillinn væri sirka hálfnaður. Ég vildi ekki bíða með þetta of lengi. Námsleyfið er ótrúlega gott fyrir sálina og ég mæli með að fólk skoði málið eftir 10 til 12 ár í starfi. Það er gott að skipta um vettvang og þetta er ótrúlega mikið búst. Ég kom endurnærð og hress til baka og nýt þess í botn að sinna mínu starfi í kennslustofunni. Ég ætla að vera kennari á meðan mér þykir það gaman.“

Að fylgjast með þessum krökkum vaxa og dafna er ómetanlegt. Allt eru þetta einstaklingar sem taka út þroska hér og það er sérlega gaman að kenna þeim