Jafnréttisnefnd KÍ ályktar um ólíkar aðstæður nemenda

Fréttir|27. mars 2020

Mikilvægt er að hlúa að öllum hópum nemenda og minnir Jafnréttisnefnd KÍ á tilkynningarskyldu vegna mögulegs heimilisofbeldis.

Jafnréttisnefnd Kennarasambands Íslands lýsir yfir áhyggjum af ólíkum aðstæðum nemenda og minnir kennara á tilkynningarskyldu vegna mögulegs heimilisofbeldis.

 

Nú á tímum skæðrar farsóttar hefur skólastarf verið skert vegna samkomubanns og hefur námi barna verið beint í meira lagi heim og í fang foreldra. Ljóst er að börn búa við mismunandi atlæti og hafa heimilisaðstæður veruleg áhrif á líf og nám barna. Foreldrar eru misvel í stakk búnir að aðstoða börn sín við námið og eykur það á hættu á mismunun. Börn sem búa við erfiðar heimilisaðstæður eru í meiri hættu að missa af lestinni námslega og hefur það bein áhrif á námsgetu og líðan. Kennarar þurfa að vera meðvitaðir um að í ástandi sem nú ríkir er hætta á auknu heimilisofbeldi.

Mikilvægt er að kennarar sinni tilkynningarskyldu sinni um mögulegt ofbeldi gegn barni við núverandi aðstæður eins og fyrr. Jafnréttisnefnd vill minna kennara á að jafnrétti til náms er afar erfitt á tímum sem þessum og þarf að hlúa sérstaklega að þeim nemendum sem bera skarðan hlut frá borði.

 

Frétt á KÍ: Viðbragðsteymi vegna viðkvæmra hópa.