Jafnréttisnefnd hvetur frambjóðendur til að ræða jafnrétti

Fréttir|12. apríl 2022

Umræða um nauðsyn jafnréttis- og kynjafræðikennslu á öllum skólastigum er mikilvæg að mati jafnréttisnefndar KÍ – ekki síst nú þegar sveitarstjórnarkosningar eru fram undan.

Jafnréttisnefnd Kennarasambands Íslands hefur sent bréf til allra framboða í komandi sveitarstjórnarkosningum. Í bréfinu eru frambjóðendur hvattir til að ræða jafnrétti, setja það í forgrunn og krefjast breytinga. 

„Með því að kenna jafnréttis- og kynjafræði á öllum skólastigum og nýta kennsluefni sem hæfir hverju aldursstigi getum við jafnréttisvætt og bætt um leið lífsgæði komandi kynslóða. Enginn vettvangur er jafn sterkur og skólakerfið, þar er unnið með viðhorf barna og ungmenna alla daga. Jafnrétti verður aldrei náð í samfélaginu ef skólakerfið er ekki virkur aðili í þeirri vegferð," segir orðrétt í bréfinu. 

Jafnréttisefnd fagnar umræðu um mikilvægi jafnréttis- og kynjafræðikennslu sem fram fór fyrir síðustu alþingiskosningar. Nú sé að laga að halda áfram og láta verkin tala. 

„Ekki duga orðin tóm því atburðir líðandi stundar og hver #metoo bylgjan á fætur annarri hlýtur að hafa vakið fólk til meðvitundar um mikilvægi þess að jafnréttisvæða skólakerfið og leiðrétta ómeðvitaða hlutdrægni um minnihlutahópa. Hvar annars staðar er hægt að ná fram jafnréttisnæmi þjóðar?" 

Jafnréttisnefnd býðst til að mæta til funda með frambjóðendum og ræða málefni jafnréttis- og kynjafræðikennslu. 

Bréf jafnréttisnefndar KÍ