Jafnréttismál rædd við fulltrúa flokkanna

Fulltrúar stjórnmálaflokka sem bjóða fram í komandi sveitarstjórnarkosningum þáðu boð Jafnréttisnefndar KÍ um samræðufund um jafnréttismál. Góð mæting var á fundinn.
Fulltrúar stjórnmálaflokka sem bjóða fram í komandi sveitarstjórnarkosningum komu til fundar við Jafnréttisnefnd Kennarasambands Íslands í morgun. Fundurinn fór fram í Stórholti, sal Kennarasambandsins við Borgartún.
Upphafsávarp flutti Sigrún Birna Björnsdóttir, sérfræðingur í jafnréttis- og vinnuumhverfismálum hjá KÍ. Sigrún Birna fór yfir lagaumhverfið er kemur að skólastarfi og fjallaði um grunnþætti menntunar. Grunnþátturinn jafnrétti vill gleymast en hann á að vera rauður þráður í öllu skólastarfi. Sigrún lagði áherslu á að þegar rætt væri um jafnrétti væri átt við jafnrétti allra. Ennfremur minntist hún á 15. grein jafnréttislaga hvar stendur að nemendur skulu hljóta jafnréttis- og kynjafræðslu á öllum skólastigum.
Hanna Björg Vilhjálmsdóttir, forkona Jafnréttisnefndar KÍ, steig næst á svið og ræddi kynja- og jafnréttisfræðslu frá ýmsum sjónarhornum. Hún sagði þverpólitíska samstöðu nauðsynlega eigi að ná því marki að jafnréttisfræðsla fari fram á öllum skólastigum; eins og lög gera ráð fyrir. Hanna talaði einnig um að jafnréttisvæðing skólakerfisins væri mikilvæg og mennta þurfi kennara til að sinna grunnþættinum jafnt og þétt á öllum skólastigum. Hún lagði áherslu á að um væri að ræða alhliða kynfræðslu þar sem jafnréttis-, kynjafræði- og kynfræðsla væru undir sama hatti. Fram kom að til þess að uppræta kerfisbundna fordóma þá þarf allt nám að stefna í sömu átt og kennarar að búa yfir jafnréttisnæmi.
Frambjóðendur tóku margir til máls og sköpuðust málefnalegar og góðar umræður. Það er von Jafnréttisnefndar að stjórnmálafólkið hafi farið vel nestað af fundinum.