Jafnréttisland mótað í Giljaskóla

Fréttir|2. júní 2015

Í þriðja bekk Giljaskóla fara reglulega fram umræður um flókna hluti eins og jafnrétti, mannréttindi og lýðræði.

Anna Kristín Arnarsdóttir og Svava Þ. Hjaltalín, kennarar við Giljaskóla á Akureyri, bjuggu til verkefnið Jafnréttislandið á síðasta skólaári, en þá kenndu þær þriðja bekk. Í vetur þróuðu þær verkefnið áfram með sömu nemendum og eru staðráðnar í að láta ekki staðar numið. „Grunnþættir menntunar eru m.a. jafnrétti, lýðræði og mannréttindi og sköpun. Við undirbúning kennslunnar fannst okkur vanta kennsluefni sem tæki á þessum grunnþáttum og höfðaði til barna. Eftir nokkrar vangaveltur varð hugmyndin að Jafnréttislandi til. Verkefnið hefur gengið vel og nemendur verið áhugasamir og tekið virkan þátt í samræðum, ýmis konar hönnun og lýðræðislegum ákvörðunum. Viðfangsefnin eru nánast óþrjótandi. Stundum eru mál ofarlega á baugi í fréttum og sum tengd nærsamfélaginu og þá færum við umræðuna inn í skólastofuna. Nemendurnir koma líka með tillögur, þannig að það er sjaldan skortur á hugmyndum. Nýjasta umræðuefnið er samkynhneigð, en fræðsla um það viðfangsefni hefur verið í umræðunni undanfarið,“ segja þær Anna og Svava.

Framarlega í jafnrétti og lýðræði
„Vinnan með börnunum felst m.a. í samræðum sem stundum leiða til frekari útfærslu eins og myndverka eða föndurs. Börnunum er skipt í hópa sem vinna t.d. tillögur sem síðan þarf að kjósa um. Að loknum kynningum tillagna er gengið til kosninga. Með kosningum læra nemendurnir að meirihlutinn ræður. Börnin vita meira um jafnrétti en við héldum og eru ekki föst í kynbundnum störfum. Þegar umræðan snerist um leikföng höfðu börnin hins vegar sterkari skoðanir.“ 

Skattar og útsvar
„Krakkarnir fóru oft á flug í umræðum um hvað þyrfti að vera í Jafnréttislandi. Flest kostar peninga og ekki hægt að gera allt sem mann langar til að gera. Það þarf oft að forgangsraða. Fyrst þyrfti að leggja út fyrir nauðsynlegum hlutum eins og rekstri sjúkrahúss, vegakerfis, skóla og svo framvegis. Niðurstöður kosninga réðu úrslitum um verkefni. Til dæmis var rætt um hjólreiðastíga eða vegi, skemmtigarða eða sjúkrahús. Þörf var á að ræða skatta og útsvar, sem þegnar Jafnréttislandsins þyrftu að greiða eins og foreldrar þeirra. Þannig tengjum við umræðuna við Ísland í dag,“ segja Svava og Anna.


Anna Kristín Arnarsdóttir og Svava Þ. Hjaltalín kennarar. Þær ætla að þróa Jafnréttislandið enn frekar á næsta skólaári. Mynd Völundur Jónsson. 

Lýðræðislegar kosningar
„Börnunum finnst gaman að kjósa og eru sjálfstæð í skoðunum sínum. Við gætum þess að sjálfsögðu að ekki sé rekinn áróður á kjörstað. Áður en hægt var að kjósa þurfti að fara yfir framkvæmd kosninga og hlutverk tengd kosningum. Það þurfti að skipa starfsfólk á kjörstað, útbúa skilríki, búa til kjörskrá og kjörseðla, útvega kjörkassa og síðast en ekki síst að útbúa kjörklefa. Nemendur sinna ýmsum störfum á kjörstað, svo sem að standa vörð og hleypa inn í kjördeild, merkja við og afhenda kjörseðla. Það gefur tilefni til að ræða um hlutverk hjálparsveita og sjálfboðaliðastarf. Sérstök kjörnefnd sér um að allt fari fram samkvæmt settum reglum. Hver og einn nemandi þarf að sýna nafnskírteini með nafni, mynd og kennitölu til að fá að kjósa. Þegar niðurstöður kosninga liggja fyrir þurfa allir að una þeim, eins og í sönnu lýðræðisríki. Allur skólinn notaði þetta fyrirkomulag, þegar árlegt þema var ákveðið. Fram að því höfðu kennararnir ákveðið efnið, en með því að efna til kosninga færðist ákvörðunin yfir til nemenda sem komu með hugmyndir sem kosið var úr. Þetta gekk fram úr björtustu vonum og verður vonandi hefð héðan í frá.“

Góð leið
„Það er hægt að taka nánast hvað sem er fyrir í svona verkefni sem tengist umræddum grunnþáttum. Eftir á að hyggja teljum við að þetta sé nokkuð einföld og góð leið til að skapa umræður um flókna hluti eins og jafnrétti, mannréttindi og lýðræði með öllum þeim fléttum og útúrdúrum sem þeim fylgja. Við fundum okkur í verkefninu og nemendur okkar líka. Verkefnið má svo auðveldlega samþætta við aðrar námsgreinar sem maður leitast við að gera með yngri börn. Sum mikilvæg þjóðfélagsmál eru ekki endilega rædd svo mikið við börn, en þau hafa ýmislegt til málanna að leggja. Til dæmis sköpuðust í vetur miklar umræður um mikilvægi sjúkraflugs og Vaðlaheiðargöng. Vinnan við Jafnréttisland hefur þjálfað nemendur okkar í að skipuleggja samræður þannig að tillit sé tekið til allra. Þeir þjálfast líka í að koma hugmyndum sínum á framfæri hvort sem er í orði eða í verki. Þeir læra að engin ein skoðun er rétt og þjálfast í að virða skoðanir annarra og fjölbreytileika bæði í útliti og háttum. Við erum fullvissar um að þessi vinna hefur aukið bæði víðsýni og umburðarlyndi barnanna þannig að ávinningurinn er ótvíræður.“

Aftur á næsta skólaári
„Vinna okkar með Jafnréttisland á örugglega sinn þátt í að það er góður andi í bekknum okkar. Nemendurnir eru betur í stakk búnir til að eiga í góðum samskiptum þar sem þeir hafa fengið mörg tækifæri til að ræða málin fram og til baka og komast að lýðræðislegri niðurstöðu. Næsta vetur verðum við með fyrsta bekk og erum ákveðnar í að taka upp þráðinn og byggja upp nýtt Jafnréttisland með nýjum börnum,“ segja Anna Kristín Arnarsdóttir og Svava Þ. Hjaltalín.

Greinin birtist í Skólavörðunni, 4. tölublaði 2015. Skólavarðan er aðgengileg á pdf-formi en einnig er handhægt að lesa hana í Skólavörðuappinu sem fæst í App Store og á Google Play.