Jafnréttisfræðsla í grunnskólum landsins

Fréttir|4. ágúst 2016

Jafnréttisnefnd KÍ sendi á síðasta skólaári bréf til skólastjóra allra grunnskóla landinu þar sem þeir voru hvattir til að sinna og styðja við jafnréttisfræðslu í grunnskólum. Í bréfi jafnréttisnefndar sem sent var til grunnskólastjóra í nóvember 2015 var spurt hvað skólinn sé að gera varðandi jafnréttisfræðslu, þeir hvattir til að taka erindið upp með kennurum og öðru starfsfólki skólans og bent á upplýsingar um margvíslegt gagnlegt efni sem hægt er að nýta í jafnréttisfræðslu. Eftir áramót var svo grennslast fyrir um móttöku erindisins og stöðu mála. Tæplega 50 grunnskólar af um 178 svöruðu fyrirspurninni.

Langflestir grunnskólanna eru með jafnréttisáætlun sem tekur bæði til kennara og nemenda og um rúmlega þriðjungur var með aðgerðaráætlun sem hluta af henni. Nokkrir sögðust auk þess vera með jafnréttisnefnd eða jafnréttisráð og fáeinir jafnréttisfulltrúa. Sumir skólar eru með kafla um jafnréttisfræðslu í skólanámskrá.

Jafnréttisfræðslan fer oftast fram á mið- og unglingastigi í lífsleikni, umsjónartímum eða samfélagsgreinum. Kynjafræði eða jafnrétti kynjanna er almennt ekki kennt sem sérstök námsgrein og er oftast einn þáttur af nokkrum í jafnréttisfræðslunni. Undir þann þátt falla atriði eins og kynhlutverk, staðalímyndir og kynbundin/kynferðisleg áreitni og ofbeldi. Aðrir þættir voru til dæmis menning, trúarbrögð, þjóðerni, kynhneigð og fötlun.
Fyrir utan hefðbundna jafnréttisfræðslu í efri bekkjum höfðu flestir grunnskólar einhvers konar viðburðadaga þar sem jafnréttismál koma við sögu. Svo sem sérstaka þemadaga (t.d. jafnréttisvika og spurningakeppnir) eða að utanaðkomandi aðilar voru fengnir til að heimsækja nemendur og/eða kennara (t.d. Jafnréttisstofa, jafnréttisfulltrúar sveitarfélaga, Samtökin 78, Tabú, Hugarafl o.fl.).

Skólarnir nýta sér oft efni sem fjallar sérstaklega um jafnrétti fyrir ungmenni eins og Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og starfsfræðslubækling Jafnréttisstofu, bókina Huxarann eftir Írisi Arnardóttur ásamt efni sem er í deiglunni á hverjum tíma, eins og þættina Rætur, þætti um 100 ára kosningaafmæli kvenna á RÚV og atriði Hagaskóla í Skrekk, hæfileikakeppni grunnskólanemenda í Reykjavík árið 2015. Ýmsar kvikmyndir eru líka nýttar, s.s. Billy Elliot og teiknimyndin Brave, og ekki síður dægurlagatónlistin.

„2000 árgangurinn átti ansi snarpa og heita umræðu um kynja- og jafnréttisbaráttu fyrir tæpu ári. Tilefnið var námsverkefni um rapp og hipp-hop texta. Hópurinn skoðaði muninn á ýmsum textum í rappi og hipp-hoppi. [...] Bæði í umræðum og ritunarverkefnum tjáðu nemendur skoðanir sínar. Þar kom margt mjög áhugavert í ljós. Umræðan var vægast sagt heit og kraftmikil. Umræðan stakk líka á mjög mörgum meinlokum og fordóma-kýlum hjá báðum kynjum. Eftir á að hyggja þá var ég mjög ánægður með þetta verkefni. En verkefnið sannfærði mig líka um (og vonandi líka nemendur) að það er risastórt verk að vinna á mjög djúpstæðum fordómum í okkar hópi.“

Það er mat jafnréttisnefndar að margt gott er gert í grunnskólum landsins þegar kemur að jafnrétti en stundum veltur jafnréttisfræðslan mikið á áhuga einstakra kennara innan skólanna og því hvort að þeir telja sig hafa nægjanlega þekkingu og/eða reynslu til að kenna um jafnrétti.
Eitt af forgangsverkefnum jafnréttisnefndar KÍ er að beita sér fyrir því að auka þekkingu og hæfni kennara og kennaranema til jafnréttisfræðslu. Liður í því hefur verið að vekja máls á skorti á jafnréttisfræðslu í kennaranáminu.

Nú nýlega hefur nefndin einnig tekið höndum saman með Jafnréttisstofu og stendur fyrir hagnýtu námskeiði í jafnréttis- og kynjafræðikennslu. Námskeiðið er aðallega hugsað fyrir kennara í efri bekkjum grunnskólans (5.-10. bekk) og hentar fyrir kennara í öllum fögum. Námskeiðið fer fram fimmtudaginn 18. ágúst kl. 14-16 í Kvennaheimilinu Hallveigarstöðum, Túngötu 14 í Reykjavík. Allar nánari upplýsingar er að finna hér.