Íslenskusjóðurinn auglýsir eftir umsóknum

Sjóðurinn veitir styrki til rannsókna- og þróunarverkefna sem styðja við íslenskunám fjöltyngdra barna.
Íslenskusjóðurinn auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum á árinu 2023. Að þessu sinni eru styrkir veittir til rannsókna- og þróunarverkefna sem styðja við íslenskunám fjöltyngdra barna í leik- og grunnskólum og/eða foreldra þeirra.
Umsóknarfrestur er til og með 27. mars 2023.
Tilgangur sjóðsins er að veita styrki til að efla vald á íslensku máli barna og fullorðinna, einkum fjöltyngdra barna af erlendum uppruna og foreldra þeirra. Styrkir skulu veittir vegna verka sem styðja við og efla notkun á íslensku máli, svo sem þróunarverkefna, námskeiða og útgáfu, einkum á leik- og grunnskólastigi.
Heildarfjárhæð úthlutunar styrkja er allt að 3.000.000 kr. Áformað er að úthlutun fari fram í maí næstkomandi.
Markmið sjóðsins
Markmið sjóðsins er að stuðla að því að íslenska verði áfram töluð á Íslandi.Tilgangur sjóðsins er að veita styrki til að efla vald á íslensku máli barna og fullorðinna, einkum fjöltyngdra barna af erlendum uppruna og foreldra þeirra. Styrkir skulu veittir vegna verka sem styðja við og efla notkun á íslensku máli, svo sem þróunarverkefna einkum á leikskóla- og grunnskólastigi, námskeiða, bókaskrifa, bókaþýðinga og bókaútgáfu, t.d. fjölmálabóka, heimasíðna, efnis fyrir snjalltæki og annars sem álitlegt þykir til að ná markmiði sjóðsins.
Nánari upplýsingar um Íslenskusjóðinn og hvernig á að sækja um