Íslenskusjóðurinn

Fréttir|7. júlí 2020

Styrkir til þróunarverkefna á leik- og grunnskólastigi.

Íslenskusjóðurinn er nýr sjóður undir hatti Styrktarsjóða Háskóla Íslands. Markmið sjóðsins er að stuðla að varðveislu íslenskrar tungu og tilgangurinn er að efla vald fólks á íslensku máli, einkum fjöltyngdra barna af erlendum uppruna og foreldra þeirra. Styrkir verða veittir til verkefna sem styðja við og efla notkun á íslensku máli, svo sem þróunarverkefna á leik- og grunnskólastigi, námskeiða, bókaskrifa og annars sem álitlegt þykir til að ná markmiði sjóðsins.

Sjóðurinn byggist á rausnarlegu framlagi Elsu Sigríðar Jónsdóttur og Tómasar Gunnarssonar en þau undirrituðu skipulagsskrá sjóðsins ásamt Jóni Atli Benediktssyni, rektor Háskóla Íslands, á dögunum. Elsa Sigríður er fyrrum lektor við Kennaraháskóla Íslands, áður við Fósturskóla Íslands, og beindust rannsóknir hennar ekki síst að fjölmenningu og leikskólastarfi. Sjóðurinn er stofnaður í minningu foreldra þeirra Tómasar og Elsu Sigríðar en þau voru öll af ungmennafélagskynslóðinni.

 

 

Frétt á vef Háskóla Íslands.