Íslenskubrú yfir í kennslu- og uppeldisstörf

Fréttir|10. maí 2023

Íslenskubrú er 60 eininga nám í íslensku og námskeiðum af menntavísindasviði Háskóla Íslands, sniðið að þeim sem hafa íslensku sem annað tungumál og starfa í skóla eða frístundastarfi. Umsóknarfrestur er til 20. maí.

Námið er samstarfsverkefni Menntavísindasviðs og Hugvísindasviðs. Meginmarkmið námsins er að efla íslenskukunnáttu nemenda, fjölga fagfólki af erlendum uppruna í íslensku menntakerfi og renna styrkari stoðum undir fjölmenningu í skóla- og frístundastarfi. 

Kennt tvisvar í viku

Kennt er á íslensku. Nemendur sækja kennslustundir í námskeiðum í íslensku tvisvar í viku. Nemendur eru saman í hóp og fá þannig tækifæri til að beina athyglinni að starfsvettvangi sínum í náminu. Verkefnastjóri á vegum Menntavísindasviðs heldur utan um nemendahópinn og veitir ráðgjöf og stuðning, til dæmis varðandi val á námskeiðum á Menntavísindasviði.

Í boði er að taka Íslenskubrú sem fullt nám á einu ári eða hlutanám á tveimur árum. Námskeiðin Íslenskt mál  I og II verður að taka á fyrra árinu. Auk þessara námskeiða hafa nemendur val um námskeið í íslensku, Talþjálfun I og II, Málfræði I og II og námskeið úr grunnnámi á Menntavísindasviði. Námskeið innan Menntavísindasviðs eru í boði þegar nemendur hafa lokið að lágmarki þrjátíu einingum af íslenskunámskeiðunum. 

Hægt að sækja um til 20. maí

Umsóknarfrestur er til 20. maí og sótt er um á vef HÍ, grunnnám, námsleiðina Íslenska sem annað mál, BA 120 ECTS. Með rafrænni umsókn skal skila greinargerð og efst á blaði verður að koma fram að sótt sé um Íslenskubrú. Við mat á umsóknum verður tekið mið af starfsreynslu og íslenskukunnáttu.

Skilyrði er að umsækjandi hafi erlent ígildi íslensks stúdentsprófs eða sambærilegt próf. Nánari upplýsingar er að finna í 17. grein reglna um inntökuskilyrði í grunnnám nr. 331-2022. Auk þess þurfa nemendur að standast lágmarkskröfur á inntökuprófi í íslensku. Færnikröfur miðast við Icelandic Online I og II sem opið er á netinu. Standist nemendur inntökupróf fara þeir í viðtal þar sem skráning í námskeið er staðfest. 

Nemendur greiða árlegt skrásetningargjald við Háskóla Íslands, líkt og aðrir nemendur. 

Nánari upplýsingar veitir verkefnisstjóri, Lára Hreinsdóttir, larahr@hi.is

Hér er hægt að lesa meira um námskeiðið.