Íslensku menntaverðlaunin afhent

Fréttir|10. nóvember 2021

Í kvöld var tilkynnt hver hljóta Íslensku menntaverðlaunin árið 2021. Athöfnin fór fram á Bessastöðum að viðstöddum forseta Íslands.

Verðlaunin, sem afhent voru með viðhöfn á Bessastöðum, voru nú veitt í annað sinn eftir að þau voru endurreist í núverandi mynd. Veitt voru verðlaun í fjórum flokkum:

  • Verðlaun fyrir framúrskarandi skólastarf eða menntaumbætur komu í hlut Leikskólans Aðalþings í Kópavogi. Þar fer fram leikskólastarf sem vakið hefur athygli langt úr fyrir landsteinana fyrir framsækni, sköpun og lýðræðisáherslur.
  • Framúrskarandi kennari árið 2021 er Hanna Rún Eiríksdóttir. Hún kennir við Klettaskóla í Reykjavík. Í störfum sínum hefur hún lagt sérstaka áherslu á möguleika fatlaðra barna til tjáningar og samskipta.
  • Leiðsagnarnám, verkefni sem hófst undir forystu Nönnu Kristínar Christiansen á vegum Skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar hlaut verðlaun sem framúrskarandi skólaþróunarverkefni. Sérstaklega þykist hafa tekist vel til að virkja ólíka aðila skólasamfélagsins í þeim tilgangi að valdefla nemendur og auka ábyrgð þeirra á eigin námi.

Að auki eru veitt Hvatningaverðlaun Íslensku menntaverðlaunanna án tilnefningar. Að þessu sinni komu þau í hlut Vöruhúss, miðstöðvar skapandi greina, á Höfn í Hornafirði. Vöruhús er samfélagsmiðstöð sem þykir framúrskarandi í að brúa bilin á milli formlegrar menntunar og óformlegrar; lista og tækni. Þar geta ungir og aldnir komið saman og sinnt skapandi starfi við bestu aðstæður.

Kennarasamband Íslands er stofnaðili hinna endurreistu menntaverðlauna og sendir öllum verðlaunahöfum hamingjuóskir.

Bent er á að hægt er að horfa á upptöku frá afhendingu verðlaunanna á vef Ríkissjónvarpsins.