Íslensku menntaverðlaunin 2023 veitt

Íslensku menntaverðlaunin 2023 voru veitt við hátíðlega athöfn á Bessastöðum, miðvikudaginn 8. nóvember, að viðstöddum Guðna Th. Jóhannessyni, forseta Íslands. Sýnt var frá afhendingunni á RÚV.
Verðlaunin eru veitt í fimm flokkum. Fyrir framúrskarandi skóla- eða menntaumbótastarf, kennslu, þróunarverkefni og iðn- og verkmenntun. Þá eru sérstök hvatningarverðlaun.
Hér er hægt að lesa meira um Íslensku menntaverðlaunin. Hér er hægt að horfa á verðlaunaafhendinguna.
Framúrskarandi skóla- eða menntaumbótastarf
Verðlaunin eru veitt menntastofnun sem stuðlað hefur að umbótum er þykja skara fram úr. Í ár komu þau í hlut Framhaldsskólans í Mosfellsbæ fyrir þróun þeirra í verkefnamiðuðum kennsluháttum og leiðsagnarnámi.
Áhersla er lögð á að virkja nemendur til þátttöku í skólanum og koma til móts við þarfir þeirra með fjölbreyttum og skapandi aðferðum. Skólinn hefur verið í fararbroddi á þessu sviði.
Framúrskarandi kennari
Verðlaunin eru veitt kennara sem stuðlað hefur að menntaumbótum sem þykja skara fram úr.
Í ár var það kennarinn Fiona Elizabeth Oliver, sem starfar við Víkurskóla í Reykjavík, sem hlaut verðlaun fyrir framúrskarandi kennslu. Víkurskóli er nýsköpunarskóli og Fiona hefur tekið virkan þátt í þróun skólans og verið verkefnistjóri um innleiðingu og þróun leiðsagnarnáms.
Fiona, sem hefur starfað sem kennari í 12 ár, ákvað að fara í kennaranám eftir að hafa starfað í leikskóla. „Þegar ég flutti til íslands fyrir tuttugu árum var fyrsta starfið sem ég fékk í leikskóla. Þar sá ég að það voru ekki bara börnin að leika sér, þar var heilmikil hugmyndafræði á bak við allt starfið. Mér fannst það svo áhugavert að ég ákvað að skella mér í námið,“ sagði Fiona við afhendinguna.
„Mér finnst góð sambönd og tengsl, bæði við nemendur og samstarfsfólk, skipta mjög miklu máli. Að nemendur viti að þau geti treyst mér og að ég hlusti á þau,“ sagði hún. En kennsla hennar einkennist af leiðsagnarnámi sem þýðir að hún fylgist grannt með námi nemenda sinna og nýtir endurgjöf, bæði gefur hún nemendum endurgjöf og óskar eftir endurgjöf á sína kennslu frá þeim.

Þetta er svo mikill heiður. ég er mjög stolt og finn fyrir miklu þakklæti. Þetta er starf sem ég elska. Sem kennari af erlendum uppruna er þetta mjög mikilvægt og hvatning fyrir aðra kennara af erlendum uppruna.
Framúrskarandi þróunarverkefni
Verðlaunin eru veitt verkefni sem þykir standast ýtrustu gæðakröfur um markmið, leiðir, inntak, mat og kynningu.
Félagsmiðstöðin Zelsíuz hlaut verðlaunin í ár. Félagsmiðstöðin hefur, í samstarfi við velferðarþjónustuna í Árborg, lyft grettistaki við að rjúfa félagslega einangrun barna og unglinga og stuðla að því að þeir verði virkir þátttakendur í félagsstarfinu.
„Verkefnið sýnir vel hvað þverfaglegt samstarf er mikilvægt til að koma til móts við börn, eins snemma og unnt er, sem er markmið nýrra laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna“, segir í fréttatilkynningu um verðlaunin.
Í ár komu verðlaunin í fyrsta sinn í hlut félagsmiðstöðvar.
Framúrskarandi iðn- eða verkmenntun
Verðlaunin eru veitt kennara, námsefnishöfundi, skóla- eða menntastofnun fyrir framúrskarandi starf, verk eða framlag til iðn- eða verkmenntunar.
Málarabraut Tækniskólans hlaut verðlaunin í ár fyrir að þróa einstaklingsmiðað nám. Námi á brautinni hefur verið umbylt á undanförnum árum. Nú getur námið farið fram hvar sem er og á hvaða hraða sem er, með hliðsjón af hæfniviðmiðum og hentisemi hvers nemenda.
Hvatningarverðlaun
Hvatningarverðlaunin eru veitt einstaklingi, hópi eða samtökum sem stuðlað hafa að menntaumbótum er þykja skara fram úr.
Jafnréttisskólinn í Reykjavík hlaut verðlaunin í ár fyrir ómetanlegt starf við að miðla þekkingu á jafnréttismálum til starfsfólks leikskóla, grunnskóla og frístundamiðstöðva Reykjavíkurborgar, ásamt stuðningi og ráðgjöf varðandi margskonar málefni sem varða jafnréttismenntun, mannréttindi og kynheilbrigði.
Verðlaunahafarnir ásamt fulltrúum stjórnvalda, Gerði Kristnýju Guðjónsdóttur rithöfundi og Guðna Th. Jóhannessyni, forseta Íslands. Hér fyrir neðan er hægt að skoða fleiri myndir frá viðburðinum, teknar af Mumma Lú ljósmyndara.