Íslenskir skólastjórnendur vekja athygli á alþjóðlegri ráðstefnu

Tólf hundrað skólastjórnendur víða að úr heiminum sóttu ULead 2024, alþjóðlega ráðstefnu skólastjórnenda, sem fór fram í Banff Springs, Kanada í apríl eins og hefðbundið er ár hvert. Í ár vakti það sérstaka athygli að þrjú valinna erinda væru íslensk.
Mikil eftirspurn er eftir því að fá að flytja þar erindi en árlega er boðið upp á áhugaverða fyrirlesara og fyrirlestra þar sem fjallað er um skólamál í víðum skilningi.
Af 1.200 ráðstefnugestum voru að þessu sinni 32 fulltrúar frá Íslandi, en alltaf komast færri að en vilja í hina árlegu ferð Skólastjórafélagsins, en félagið hefur staðið fyrir föstum ferðum á þessa ráðstefnu undanfarin ár. Efnistök ráðstefnunnar eru hefðbundin þar sem á þremur dögum er fjallað er um skipulag skólastarfs, fagmennsku, forystu, stefnumótun og leiðtogafærni.
Eins og áður sagði voru þrjú glæsileg erindi á vegum hópsins þar sem fjallað var um mismunandi þætti tengda íslensku skólastarfi. Arnbjörg Stefánsdóttir, skólastjóri Brekkubæjarskóla, og Dagný Hauksdóttir, sviðsstjóri á skóla og frístundasviði hjá Akraneskaupstað, fjölluðu um farsældarlög mennta- og barnamálaráðuneytisins, tilgang þeirra og innleiðingu í kaupstaðnum.
Helgi Arnarsson, sviðsstjóri menntasviðs í Reykjanesbæ, og Gróa Axelsdóttir, skólastjóri Stapaskóla, fjölluðu um skóla framtíðar og hlutverk stjórnenda við uppbyggingu hans. Þá fjölluðu þau Kurtis Hewson, skólastjóri og meðstofnandi Jigsaw Learning, Guðbjartur Ólason, skólastjóri Seljaskóla, og Ingileif Ástvaldsdóttir, aðjúnkt við HÍ, um verkefni fimm skóla í Breiðholti um samhæfðar aðgerðir skólanna síðustu ár um að skapa nemendamiðað nám og námsumhverfi, en verkefnið rímar vel við innleiðingu nýju farsældarlaganna.
Erindi fulltrúanna vöktu verðskuldaða athygli og ljóst er að hér á Íslandi búa sannarlega áhugaverðar raddir með faglegar hugmyndir og verkefni þegar kemur farsælu metnaðarfullu skipulagi skólastarfs til framtíðar.
Undirbúningur Ulead2025 ráðstefnunni er hafinn en hún fer fram dagana 6. – 9. apríl 2025. Árleg ferð Skólastjórafélags Íslands mun standa yfir dagana 4.-11. apríl 2025 og verður opnað fyrir skráningu innan tíðar. Stefnt er að því að bjóða eins og venjulega upp á 30 sæti og lokast fyrir skráningu um leið og þeirri tölu farþega er náð. Þegar er byrjað að tilkynna aðal fyrirlesara ársins 2025 og er þar má meðal annarra finna Elizu Reid, rithöfund og forsetafrú Íslands.