Íslenska sem annað mál verði viðurkennd námsgrein

Fréttir|6. júní 2025

Ákall er eftir viðurkenningu námsgreinarinnar íslensku sem annars máls á öllum skólastigum og að settur verði hæfnirammi um námsgreinina í Aðalnámskrá framhaldsskóla.

Íslenska sem annað mál er námsgrein sístækkandi hóps framhaldsskólanemenda hér á landi. Engu að síður geta kennarar ekki sérhæft sig í kennslu námsgreinarinnar í háskólum hérlendis og ekki er til hæfnirammi um námsgreinina í Aðalnámskrá framhaldsskóla. Þá er kallað mjög eftir fjölbreyttu námsefni í greininni. Þetta er meðal þess sem kom fram á fjölmenntu málþingi sem fór fram á Ísafirði í byrjun vikunnar. 

Veðrið var rysjótt á Ísafirði dagana 2. til 3. júní þegar málþing um inngildingu og fjölmenningu í framhaldsskólum var haldið í Menntaskólanum á Ísafirði.

Að málþinginu stóðu framhaldsskólateymi MEMM (menntun, móttaka, menning) í samstarfi við Menntaskólann á Ísafirði, mennta- og barnamálaráðuneytið, Menntavísindasvið Hí og Kennaradeild HA. Aðsókn var með eindæmum góð en 70 manns voru skráð til þátttöku og lýsir það vel þörfinni fyrir samráð, samstarf og ramma um kennslu greinarinnar.

Dagskrá málþingsins var afar fjölbreytt og náði að varpa ljósi á marga þætti þessarar mikilvægu kennslugreinar. Erindi voru um kennslu ÍSAN í framhaldsskólum þar sem kennsluhættir og námsbrautir nokkurra framhaldsskóla voru kynntar. Fjallað var um inngildingu, félagsleg tengsl og samskipti þar sem Susan Rafik Hama fræðikona frá Háskóla Íslands fjallaði um inngildingu og birtingarmynd hennar í skólastarfi og Ali Tahseen frá Miðstöð menntunar og skólaþjónustu fjallaði um millimenningarfræðslu og menningarlæsi.

Seinni daginn var fjallað um kennslufræði námsgreinarinnar þar sem hlýða mátti á fjölbreytt erindi kennara af vettvangi og erindi um undirbúning grunnskólakennaranema á menntavísindasviði HÍ.

Að lokum voru kynningar á námsefni og verkefninu Gefum íslensku séns sem Fræðslumiðstöð Vestfjarða hefur veg og vanda að.

Undir lok málþingsins var ljóst að þörfin fyrir viðurkenningu námsgreinarinnar er skýr og ákall eftir kennsluefni, sérhæfðu kennaranámi og samræmdum hæfniramma í Aðalnámskrá framhaldsskóla hávært.

Málþingið samþykkti að senda frá sér ályktun þar sem eftirfarandi kröfur eru lagðar fram:

  • Stjórnvöld setji kennslu íslensku sem annars máls í forgang.
  • Að íslenska sem annað mál verði viðurkennd námsgrein og fái viðhlítandi sess í Aðalnámskrá framhaldsskóla.
  • Að gerð verði hæfni- og matsviðmið fyrir íslensku sem annað tungumál, þau samræmd á milli grunn- og framhaldsskólastigsins og sett í samhengi við Evrópska tungumálarammann.
  • Kennurum á öllum skólastigum verði gert kleift að sérhæfa sig í kennslu íslensku sem annars máls í kennaranámi.
  • Starfandi kennarar hafi greiðan aðgang að viðeigandi fræðslu og starfsþróun.
  • Námsefnisgerð verði efld og henni hraðað.
  • Þátttakendur kalla eftir því að ráðamenn og samfélagið í heild gefi íslensku séns.

Lesa ályktunina

 

 

Svipmyndir frá málþinginu