Íslensk námsgögn – hvað er til?

Efnt verður til málstofu og sýningar á íslensku námsefni fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla 13. ágúst.
Samtök íslenskra menntatæknifyrirtækja, Miðstöð menntunar- og skólaþjónustu, Kennarasamband Íslands, Félag íslenskra bókaútgefenda, IÐNÚ, Þróunarsjóður námsgagna ásamt Skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgar standa fyrir málstofu undir yfirskriftinni „Íslensk námsgögn – hvað er til?“ Málstofan fer fram miðvikudaginn 13. ágúst kl. 16:00–17:30 í Menntaskólanum við Hamrahlíð.
Fjölbreytt kynning á íslensku námsefni
Málstofan verður haldin í fyrirlestrarsal í stofu 11. Samhliða fer fram sýning á íslensku námsefni fyrir leik-, grunn- og framhaldsskólastig í salnum Miklagarði og eftir þörfum einnig í Miðgarði.
Á málstofunni gefst öllum sem koma að gerð námsefnis á Íslandi tækifæri til að kynna þau verk sem þegar eru til.
Dagskrá
- Setning málstofu – Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra
- Hugleiðingar um stöðu og framtíð námsefnis á tímum gervigreindar – Hjörtur Ágústsson, skrifstofustjóri nýsköpunar og þróunar, Skóla- og frístundasvið Reykjavíkur
- Höfundarverk eða hrærigrautur? – Súsanna Margrét Gestsdóttir, dósent á Menntavísindasviði, Hagþenkir
- Námsefni í takt við þarfir nemenda – Heiðar Ingi Svansson, framkvæmdastjóri IÐNÚ útgáfu
- Sundkennsla á þurru landi – Ragnar Þór Pétursson, kennari í Norðlingaskóla, fv. formaður Kennarasambands Íslands
- Framtíðarsýn Miðstöðvar menntunar: Gervigreind og stafrænir innviðir í þágu skóla – Páll Ásgeir Torfason, stafrænn leiðtogi, Skrifstofa forstjóra
- Nokkur álitamál og umræðupunktar – Magnús Þór Jónsson og Guðjón Hreinn Hauksson, KI og FF
- Heima er best! – Íris E. Gísladóttir, Samtök menntatæknifyrirtækja (IEI)
- Léttar veitingar og samtal á sýningarsvæði námsefnis til kl. 18:00
Viðburðinn er hægt að nálgast á Facebook.