Ísland tekur við formennsku í NLS

Fréttir|2. desember 2025

Formaður og varaformaður KÍ munu taka við formennsku í NLS, Norrænu kennarasamtökunum um áramót.

Magnús Þór Jónsson verður formaður Norrænu kennarasamtakanna (NLS) á næsta ári og Jónína Hauksdóttir tekur við embætti varaformanns. Þetta er hefðbundið fyrirkomulag hjá NLS þar sem norrænu löndin skiptast á að leiða starf samtakanna, eitt ár í senn.

Þetta var ákveðið á haustfundi NLS sem fór fram í Osló í liðinni viku. Fundir NLS munu því fara fram hér á landi allt næsta ár. 

Starfsáætlun var jafnframt samþykkt á haustfundinum og verður sjónum einkum beint að vinnutíma kennara og hlutverki skóla og leikskóla í samfélagi framtíðar. Þá er einnig unnið að verkefni sem felur í sér að skoða hlutverk kennara og stjórnenda í stafrænum heimi þar sem ofbeldi og hótanir hafa því miður færst í aukana. 

NLS stendur fyrir Nordiske Lærerorganisationers Samråd. Innan NLS eiga aðild sextán kennarasamtök frá Danmörku, Noregi, Svíþjóð, Finnlandi, Færeyjum, Grænlandi og Íslandi. Samanlagt eru félagsmenn um 600 þúsund talsins.