Innra mat: Lífæð framfara og umbóta eða íþyngjandi fylgihlutur skólastarfs?

Fréttir|27. desember 2025

Rannsóknir sýna að þegar skólar og kennarar taka þátt í markvissri matsvinnu, sem tengist daglegum störfum, þróast umbótamenning sem styður faglegt lærdómssamfélag og eflir gæði skólastarfs, skrifar Anna Greta Ólafsdóttir.

Það sem við mælum hefur áhrif á það sem við gerum. Skólasamfélag sem leggur áherslu á stöðugar umbætur í þágu nemenda er skólasamfélag sem er betur í stakk búið til að mæta áskorunum framtíðarinnar. Faglegt og gott innra mat gerir okkur kleift að rýna með kerfisbundnum hætti í ákveðin viðfangsefni eins og kennsluhætti, námsframvindu og skipulag skóla. Rannsóknir benda til þess að vel útfærðar matsaðferðir auki meðvitund kennara um eigin starfshætti og skili betri námsárangri nemenda.

Þótt það hljómi þversagnakennt þá getur innra mat átt þátt í því að minnka álag í skólum. Rökin fyrir því eru þau að sum verkefni eiga það einfaldlega til að festast í kerfinu, óháð því hvort vitað sé til þess að þau skili góðum árangri.

Föstudagspóstar, sem kennarar senda til foreldra, eru kannski dæmi um slíkt verkefni sem upphaflega var líklega ætlað að bæta upplýsingaflæði og hefur náð fótfestu í mörgum skólum landsins. Ef engin skipulögð athugun fer fram á því hversu margir lesa póstana eða hve gagnlegir þeir reynast, er hætt við að þeir séu dæmi um verkefni sem hefur frekar endað sem hefð, fremur en nauðsyn. Án mats er einfaldlega erfitt að vita hvort tími kennarans væri betur nýttur í annað.

Annað dæmi gæti verið fjölgun stuðningsfulltrúa í grunnskólum landsins. Þótt slíkt úrræði geti verið gagnlegt þá vantar oft heildrænt mat á gæðum þess. Getur verið að það sé dæmi um úrræði sem gripið var til á ákveðnum tímapunkti, til dæmis þegar búið var að fjölga nemendum í hverjum bekk um of? En hefur svo aftur á móti vantað í gegnum tíðina reglulegt mat á hvort úrræðið sé til dæmis betra en ef það hefði verið farið aftur til baka í minni bekkjadeildir?

Þegar ekki er staðið dyggilega að innra mati er einfaldlega erfitt að greina hvort rétt sé að halda áfram á sömu braut eða snúa við blaðinu.

Ef engin skipulögð athugun fer fram á því hversu margir lesa póstana eða hve gagnlegir þeir reynast, er hætt við að þeir séu dæmi um verkefni sem hefur frekar endað sem hefð, fremur en nauðsyn

Margir kennarar telja sig þegar vera undir miklu álagi og óttast jafnvel að stöðugt innra mat verði enn eitt verkefnið sem bætist ofan á annasaman vinnudag, án þess að skila auknum kennslugæðum. Þess vegna er mikilvægt að átta sig á hlutverki hvers og eins verkefnis. 

Kennarar þurfa hvorki, né eiga, að vera sérfræðingar í matsfræðum; það er hlutverk stjórnenda og yfirvalda að tryggja að skólar hafi aðgang að gæðakerfum, fræðslu og öðrum stuðningi. Enda slíkt hagur alls samfélagsins. Rannsóknir sýna að þegar skólar og kennarar taka þátt í markvissri matsvinnu, sem tengist daglegum störfum, þróast umbótamenning sem styður faglegt lærdómssamfélag og eflir gæði skólastarfs.

Við erum sennilega flest sammála um að gæði séu grundvallaratriði í öllu skólastarfi. En stóra spurningin er, hvers vegna leggjum við ekki meiri áherslu á innra mat í íslenskum skólum?