Inngangur að hátækniverkfræði

Fréttir|21. apríl 2020

Námskeiðið var haldið í október 2019.

Inngangur að hátækniverkfræði

Hátækniverkfræði (e. mecatronics) er að ryðja sér meira til rúms í heiminum og er hluti af því sem er kallað 4. Iðnbyltingin. Arduino og RaspberyPI eru ódýr og afar heppileg kennslutól til að vinna með fjölbreytt verkefni á þessu sviði. Einnig er þetta vettvangur þar sem forritun skarast við áþreifanlegar afurðir með e. hands-on verkefnum. 

 

Fyrirkomulag:

  •  Kennari er Baldur Þorgilsson en hann kennir m.a. námskeið á sviði rafeinda- og  véleindatækni í Háskóla Reykjavíkur.
  •  Baldur verður með ýmis verkleg sýnidæmi, vekefni og umræður er viðkemur e. mechatronics.
  •  Unnið verður með Arduino og RaspberryPI ásamt ýmsum íhlutum.
  •  Farið verður m.a. í e. interfacing við vélbúnað, samskipti tækja og ýmis tól og tæki skoðuð.
  •  Námskeiðið er hugsað fyrir áhugasama byrjendur sem og lengra komna framhaldsskólakennara á þessu sviði.

 

Dagsetningar og staðetning:

  •  Dagur 1:  Laugardagur 2. nóvember 2019    
  •  Dagur 2:  Mánudagur  4. nóvember 2019     

 

Námskeiðið verður haldið í Háskóla Reykjavíkur í  rafeindatæknistofu.

Þáttakendur verða að koma með eigin fartölvur.

 

Skráning:

  •  Námskeiðið er gjaldfrjálst, en hámarksfjöldi þáttakanda er 14 manns.
  •  Félagsmenn FTK hafa forgang á námskeiðið en allir framhaldsskólakennarar (félagsmenn KÍ) eru velkomnir á námskeiðið.
  •  Skráning fer fram með því að senda póst með nafni, kennitölu og skóla sem viðkomandi kennir í á netfangið faggreinafelagftk@gmail.com

 

Baldur Þorgilsson (MSEE):

Baldur kennir námskeið á sviði rafeindatækni, véleindatækni og heilbrigðstækni sem fjalla t.d. um nema, magnara, örgjörva, forritun, mótorstýringar og mælingar á hreyfingum líkamans. Auk þess að kenna við HR er hann með annan fótinn í iðnaðinum þar sem hann hefur komið að nokkrum frumkvöðlafélögum. Baldur er rafeindavirki frá Iðnskólanum í Reykjavík 1982, tæknifræðingur frá Odense Teknikum 1987 og rafmangsverkfræðingur frá DTH 1992.Baldur starfaði hjá Bruel og Kjær í Danmörku og á Eðlisfræði- og tæknideild Landspítalans, Kine ehf og Pi Verkfræðiþjónustu. Hann hefur verið virkur í félagssörfum sem tengjast sviðinu, m.a. verið meðstofnandi að Heilbrigðistæknifélagi Íslands, setið í ýmsum stjórnum innan SI er varða frumkvöðlafyrirtæki.

 

Námskeiðið er á vegum félag tölvunar- og kerfisfræðikennara í framhaldsskólum (FTK) í samstarfi við Endurmenntunarskólann - Tækniskólinn, með styrk frá Rannís.