Innfædd á internetinu: breyttur heimur, snjallari nemendur

Kennarasamband Íslands og Skólameistarafélag Íslands efna til Skólamálaþings á Alþjóðadegi kennara 5. október næstkomandi.
Kennarasamband Íslands og Skólameistarafélag Íslands efna til Skólamálaþings á Alþjóðadegi kennara 5. október næstkomandi. Yfirskrift Skólamálaþings er Innfædd á internetinu: breyttur heimur, snjallari nemendur. Þingið verður haldið í Silfurbergi í Hörpu og stendur frá klukkan 9.30 til 15.
Aðalfyrirlesari Skólamálaþings er hinn virti skóla- og fræðimaður dr. Zachary Walker og heldur hann tvo fyrirlestra en auk þess verða pallborðsumræður. Skólamálaþingið er ætlað kennurum, skólastjórnendum, námsráðgjöfum og skólafólki almennt á öllum skólastigum.
Ráðstefnustjóri: Stefanía G. Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri CCP á Íslandi.
Ráðstefnugjald er kr. 8.000 og miðar eru seldir á tix.is. Hægt er að sækja um styrk í endurmenntunarsjóðum KÍ.
Hver er Zachary Walker?
Dr. Walker starfar við menntamálastofnunina National Institute of Education (NIE) og Nanyang tækniháskólann (NTU) í Singapore, sem er í 11. sæti á alþjóðlegum gæðalista yfir háskóla. Í NIE situr hann í starfshópi um kennslu og nám á 21. öld. Hann hefur fengið fjölda viðurkenninga, t.d. árið 2012 sem framúrskarandi fræðimaður, 2015 var hann útnefndur brautryðjandi (a Millennium Milestone Maker) af Heimssamtökum um framtíð kvenna og sama ár fékk hann John Cheung viðurkenninguna fyrir nýbreytni í notkun samfélagsmiðla í kennslu og námi. Hann hefur kennt og leiðbeint í Bandaríkjunum, Asíu, Evrópu, Mið-Ameríku og á Karabísku eyjunum. Hjá UNESCO hefur hann unnið að stefnumótun fyrir þá sem glíma við námsörðugleika.
Zachary Walker – kynningarmyndband
Zachary Walker – 5 Questions for Today´s Educators
Vakin er athygli á að föstudaginn 6. október heldur Dr. Zachary Walker tvær málstofur á Menntakviku Háskóla Íslands. Nánari upplýsingar og skráning er á heimasíðu Menntakviku.