Ingibjörg gefur ekki kost á sér til endurkjörs

Ingibjörg Kristleifsdóttir, formaður Félags stjórnenda leikskóla, gefur ekki kost á sér til endurkjörs í komandi kosningum um formann FSL.
Ingibjörg Kristleifsdóttir, formaður Félags stjórnenda leikskóla, gefur ekki kost á sér til endurkjörs í komandi kosningum um formann FSL.
Ingibjörg hefur gegnt embætti formanns í FSL frá stofnun félagsins 2010. Þar áður starfaði hún innan vébanda Félags leikskólakennara og var meðal annars varaformaður félagins frá 2008-2010.
Framboðsnefnd Félags stjórnenda leikskóla hefur auglýst eftir framboðum og tilnefningum til formanns FSL.
Lög FSL gera ráð fyrir að formaður FSL sé kosinn í allsherjaratkvæðagreiðslu eigi síðar en sex vikum fyrir aðalfund. Frestur til að skila inn framboðum/tilnefningum er til 9. nóvember næstkomandi. Atkvæðagreiðsla mun fara fram dagana 23. til 26. nóvember 2017.