„Í vetur ætlum við okkur að ná árangri víða"

„Á næstu vikum og mánuðum er mikið verk fyrir höndum og þar treysti ég á það að íslenskum kennurum og skólastjórnendum verði búinn sá aðbúnaður sem þeir þurfa til að efla og mennta nemendur sína," segir formaður KÍ um nýja skólaárið.
Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands skrifar:
„Kæru kollegar.
Dagurinn styttist, húmið sækir að. Ljúft myrkur bærir á sér, lægðirnar dýpka og fara í það verk að rífa lauf af trjám og bleyta upp í tilverunni, jafnvel leggja til snjó í fjallstoppa og niður hlíðar. Bændur sækja féð eftir uppskeru sumarsins og fuglarnir hópast til heitari landa.
Já... og skólar landsins fyllast af fróðleiksfúsum og hressum nemendum sem brosa á móti heiminum, sannarlega tilbúin að stíga næstu skref á lærdómsgöngunni sinni. Starfsemi leikskólanna hófst fyrst af skólastigunum eftir sumarfrí en nú hafa skólar á öllum stigum og af öllum gerðum hafið störf fyrir komandi skólaár.
Hvert skólaár markar upphaf. Ég hef stundum sótt í ættbogann minn fullan af hafsins hetjum þegar ég líki skólaárum við sjóferð. Það er reynsla í bátnum en ný áhöfn hvert sinn, það er sótt á miðin og ætlunin að siglingin skili árangri þegar í höfn verður snúið á ný. Það blæs úr ólíkum áttum, spegilslétt yfirborð sem getur orðið úfið, og allt haft áhrif á niðurstöðuna. Við erum alltaf bjartsýn þegar við leggjum af stað eftir sumarið og í því felst stór hluti af hugsjón okkar, við erum í áhöfninni og tilbúin að vinna gagn fyrir nemendur okkar. Leiða það verkefni að búa þeim aðstæður fyrir þá gæðamenntun sem við viljum standa fyrir.
Farsælast að skólafólk leiði umræðu um skólastarf
Þegar lagt er af stað er það sannarlega þannig að margt ber við himin sem við höfum tekið mið af við upphaf skólans. Við sem vinnum á skrifstofu Kennarasambandsins verðum vör við ólíka umræðu í samfélaginu sem snertir okkar hlutverk og starf. Þar fer oft umræða sem snýr að því að tala um okkur en ekki við okkur og að mínu mati of oft verið að reyna að þröngva einum sannleika inn í umræðu sem er margbreytileg. Það er fyrir löngu ljóst að farsælast er að kennarar og skólastjórnendur leiði umræðu um skólastarf og komi með þær tillögur og leiðir sem best farnast. Þar er hægt að benda á ólíka þætti eins og aðbúnað þess húsnæðis sem menntun er búin, hvernig best er að fanga skólastarf í heimi sem nú stígur stöðugt hraðar inn í heim snjalltækni og gervigreindar, eða viðbrögð við því að Ísland hefur orðið stöðugt kraftmeira fjölmenningarsamfélag. Við getum líka nefnt umræðuna um farsæld barna í skólakerfinu, hvernig við komum best til móts við ólíka námshæfileika eða hvaða námsgögn og námsaðferðir nýtast best.
KÍ er nú stigið upp úr bernsku- og unglingsárunum og er að verða fullorðið samband. Þing okkar á síðasta ári lagði kröfur á okkur sem vinnum að hagsmunum kennara á milli þinga, kröfur um að horfa til ólíkra þátta skólastarfs. Við viljum sannarlega bregðast við því og ætlum í vetur að gera meira í því að leita eftir röddum kennara svo sem þegar kemur að því að kynna okkar störf. Það er með það að markmiði að Jónína Hauksdóttir, varaformaður KÍ, mun á næstu dögum og vikum fara um landið ásamt öflugu starfsfólki af skrifstofunni til að lýsa kjarnastarfi sambandsins og fá að heyra hvað ykkur finnst hlutverk KÍ eiga að vera í framtíðinni. Í framhaldi hringferðarinnar ætlum við að leggja þjónustukönnun fyrir félagsfólk með að markmiði að ná fram vilja íslenskra kennara varðandi starfsemi Kennarasambandsins, þeim til heilla. Við verðum að vera tilbúin til að horfa í spegilinn og máta okkur við nútímann hverju sinni, velta upp hvernig við viljum þróa stuðning sambandsins við kennarana á vettvangi.

Við verðum að vera tilbúin til að horfa í spegilinn og máta okkur við nútímann hverju sinni, velta upp hvernig við viljum þróa stuðning sambandsins við kennarana á vettvangi
Lykilatriði í starfi stéttarfélaga er að berjast fyrir bættum kjörum félagsmanna og standa vörð um réttindi þeirra. Á þessu ári hafa 6 af 7 aðildarfélögum KÍ gert kjarasamninga fyrir sitt félagsfólk, samninga sem renna út í lok maí á næsta ári. Enn vinna kennarar og stjórnendur í tónlistarskólum að því að ná samningi og við treystum því að aðkoma Ríkissáttasemjara muni hjálpa til við að koma þeirri vinnu í örugga höfn.
Jöfnun launa á dagskrá
Í mars var svo undirritað áfangasamkomulag með aðkomu KÍ vegna vinnu við jöfnun launa sem er byggð á samkomulagi frá 2016 þar sem opinberum launagreiðendum og stéttarfélögum á opinberum markaði var falið að finna og greina ómálefnalegan launamun milli almenna og opinbera markaðarins. Væri slíkur munur til staðar ætti hópurinn að leggja fram tillögur að leiðum sem gætu leyst þann vanda.
Það verður viðurkennt hér að umrætt samkomulag, sem nú hefur meðal annars leitt af sér breytingar á lífeyriskjörum hluta félagsmanna KÍ, hefur sannarlega ekki leitt af sér efnislegan afrakstur þrátt fyrir að nú séu komin sjö ár frá undirritun. Frá áramótum og fram í mars fór fram gríðarleg vinna í starfshópi þar sem KÍ, BSRB og BHM komu saman að borði til að ræða við opinbera launagreiðendur. Segja má að fyrst þá hafi verið tekist á við verkefnið á efnislegan hátt. Með undirritun samkomulagsins í mars fékkst staðfesting á því að starfshópurinn hefði fundið merki um ómálefnalegan launamun innan ákveðinna starfa opinbera markaðarins sem vert væri að gefa gaum og leiðrétta. Það var skref í sjálfu sér, sem og það að loksins var fallist á kröfu stéttarfélaganna um að verkinu yrði stýrt með formlegum hætti til að finna hina endanlegu lausn.
Áfangasamkomulaginu var ætlað að hafa klárað hið litla skref sem útlínur voru teiknaðar upp í mars ekki síðar en 1. september. Breytingar á starfsliði Ríkissáttasemjara höfðu eilítil áhrif á vinnuna en væntanlega lýkur þeirri vinnu nú í fyrstu viku september. Það skiptir máli því stóra málið í huga okkar í stjórn Kennarasambandsins er sú vinna sem fer fram frá því að vinnu við áfangasamkomulagið lýkur og fram til 15. janúar 2024, þegar frestur starfshópsins til að skila tillögu um varanlega leið að jöfnun launa milli markaða á að liggja fyrir.
Þó það hafi verið mikilvægt að ákveðnir hópar hafi áður fengið hljómgrunn í áfangasamkomulaginu er algerlega kýrskýrt að allir kennarar og skólastjórnendur verða inni í jöfnunni, enda erum við algerlega sannfærð um það að allir félagsmenn KÍ búi við ómálefnalegan launamun. Launamun sem lofað var að hefja leiðréttingu á í kjölfar samkomulagsins árið 2016 og á fyrir löngu að hafa lagt af stað. Ef hópnum dugar ekki tíminn til janúar 2024 hljótum við að horfa til texta umræddrar 7. greinar um að ef að ekki finnist leið verði það hvers stéttarfélags og aðildarfélaga þeirra að vinna að lausn. Við hjá KÍ verðum... og erum... tilbúin í það verkefni ef starfshópurinn nær ekki árangri. Það er klárt.
Raddir skólafólks heyrist
Snúum okkur aftur að skipinu sem nú er lagt úr höfn og siglir inn á miðin. Skólafólk allt er tilbúið í verkið og mun leggja mikið á sig til að ná árangri. Á næstu vikum og mánuðum er mikið verk fyrir höndum og þar treysti ég á það að íslenskum kennurum og skólastjórnendum verði búinn sá aðbúnaður sem þeir þurfa til að efla og mennta nemendur sína. Farsæld barna liggur í gæðum menntunar þeirra, menntunar sem allir eiga jafnan rétt á að fá í kerfinu okkar og í skólunum okkar, sem eru yfirfullir af hæfileikum og metnaði.
Við hjá KÍ teljum okkur hluta hvers og eins íslensks skóla og hlutverk okkar er að styðja við kennara og skólastjórnendur með ráðum og dáð. Við hlökkum til siglingarinnar með íslensku skólakerfi og erum tilbúin að leggja okkar til sem gæti orðið til að efla starf íslenskra kennara og skólastjórnenda.
Í vetur ætlum við okkur að ná árangri víða, handviss um að raddir okkar séu metnar að verðleikum. Við ætlum að taka umræðu um ólíka þætti skólastarfsins til okkar. Það að leiða inn farsæld sem felst í gæðamenntun á öllum skólastigum, í ólíkum gerðum skóla, er verkefni sem verður farsælast í höndum íslenskra kennara og skólastjórnenda. Það er okkar sérfræðiþekking sem hámarkar árangurinn og í því verkefni, eins og öðru, vitum við að saman erum við sterkari!
Gangi okkur öllum vel í verkefnum komandi skólaárs
Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ“