Í tilefni af launasamanburði Sambands íslenskra sveitarfélaga

Fréttir|8. nóvember 2024

„Það liggur í augum uppi að launahækkun um 100 þúsund krónur hjá einstaklingi sem er með 500 þúsund krónur í laun er hlutfallslega meiri en hjá einstaklingi sem er með 700 þúsund krónur í laun og fær sömu hækkun,“ segir í tilkynningu frá Kennarasambandi Íslands.

Í tilefni af launasamanburði Sambands íslenskra sveitarfélaga

Samband íslenskra sveitarfélaga vakti athygli á því á heimasíðu sinni í dag að heildarlaun sérfræðinga á almennum markaði hefðu hækkað minna hlutfallslega frá árinu 2014 til ársins 2023 en heildarlaun kennara. Á því eru nokkrar eðlilegar skýringar. Helst ber að nefna að í undanförnum kjarasamningum hefur verið samið um krónutöluhækkanir launa. Það liggur í augum uppi að launahækkun um 100 þúsund krónur hjá einstaklingi sem er með 500 þúsund krónur í laun er hlutfallslega meiri en hjá einstaklingi sem er með 700 þúsund krónur í laun og fær sömu hækkun.

Kjarni málsins er launamunur hópanna. Heildarlaun sérfræðinga á almennum markaði voru að meðaltali rúmlega 1,1 milljón krónur á mánuði í fyrra, eins og haft er eftir hagfræðingi Sambandsins í fréttum. Heildarlaun sérfræðinga í fræðslustarfsemi (kennara) voru að meðaltali um 840 þúsund krónur á sama tíma, samkvæmt tölum frá Hagstofu Íslands.

Vísun hagfræðings Sambandsins til heildarlauna er reyndar nokkuð sérstök því um þau er ekki samið í kjarasamningum kennara. Yfirleitt hefur verið horft til reglulegra launa við kjarasamningsborðið. Þau voru að jafnaði um 725 þúsund krónur hjá sérfræðingum í fræðslustarfsemi á árinu 2023 og að meðaltali 1.083 þúsund krónur hjá sérfræðingum á almennum markaði, svo aftur sé vitnað í tölur frá Hagstofu Íslands.

Á myndinni hér fyrir neðan má sjá launamun þessara hópa. Mun heildarlauna á lóðréttum ás og mun reglulegra launa á láréttum ás. Til samanburðar er punktur sem sýnir regluleg laun (804 þúsund krónur) og heildarlaun (935 þúsund krónur) allra fullvinnandi launamanna í landinu.

 

 

Verkefni viðræðunefndar Kennarasambands Íslands, samninganefndar sveitarfélaga og samninganefndar ríkisins er að ljúka við gerð kjarasamnings. Eins og reglulega hefur komið fram snýst meginmarkmið allra aðildarfélaga KÍ um að staðið verði við gerða samninga og laun sérfræðinga í fræðslustarfsemi verði sambærileg launum sérfræðinga á almennum markaði. Til að svo megi verða þarf að fjárfesta í kennurum og efla þannig skólastarf í landinu, auka þar með fagmennsku og stöðugleika, börnum til heilla. Viðræðunefnd KÍ mun áfram vinna að því verkefni undir verkstjórn ríkissáttasemjara með traust bakland félagsfólks að baki sér.