Í þögguninni þrífst ofbeldi

„Uppalendur, skólakerfið og kennarar bera ábyrgð á því að standa vörð um velferð barna og vernda barnæskuna. Alhliða kynfræðsla er mikilvæg vörn og fræðsla er vopnið sem reynst hefur best hingað til“, segir í ályktun sem Jafnréttisnefnd KÍ hefur sent frá sér.
„Margbreytileikinn býr í skólanum. Skólastefna, umhverfi skóla og sú fræðsla sem nemendur fá verður að endurspegla fjölbreytileika skólans og samfélagsins í heild og efla gagnrýna hugsun nemenda. Aðeins þannig er hægt að tryggja jafnrétti í skólum.
Aukin samfélagsmeðvitund og vakning hefur kallað eftir því að jafnrétti eigi að vera grunnþáttur skólastarfs og leiðarstef nútímakennsluhátta. Nýútgefið fræðsluefni Menntamálastofnunar, sem útbúið var af sérfræðingum þeirra, er svar við því ákalli.
Kennarar eru sérfræðingar. Þeir eru sérfræðingar í kennslu, nútímakennsluháttum og kennslu síns aldurshóps. Þeir eru sérfræðingar í því námsefni sem notað er í skólum; meta námsefnið áður en það er lagt inn til kennslu og matreiða það svo það hæfi aldri og samsetningu nemendahópsins.
Þótt klámvæðingin virðist vera ofurefli má með fræðslu og forvörnum opna augu og auka skilning
Félagslegar aðstæður barna eru misjafnar og þær geta haft áhrif á veganesti þeirra til framtíðar. Þar er skólinn jöfnunartæki. Skólakerfið, og um leið kennarar, jafna tækifæri nemenda til þekkingaröflunar á sama tíma og fræðsla upprætir fordóma. Ekki er vanþörf á.
Klámvæðing er mikil í samfélaginu. Rannsóknir sýna að börn frá sex ára aldri sjá óvart klám á netinu og svo virðist sem meðalaldur við fyrsta áhorf sé í kringum 11 ára aldur. Fræðsla um skaðleg áhrif þess efnis sem börn og ungmenni horfa á og um ofbeldið sem þar birtist er nauðsynleg. Því þótt klámvæðingin virðist vera ofurefli má með fræðslu og forvörnum opna augu og auka skilning.
Ábyrgð allra sem standa vörð um velferð barna er mikil. Uppalendur fara þar fremstir í flokki. Uppalendur, skólakerfið og kennarar bera ábyrgð á því að standa vörð um velferð barna og vernda barnæskuna. Alhliða kynfræðsla er mikilvæg vörn og fræðsla er vopnið sem reynst hefur best hingað til.
Þessi vegferð er nauðsynleg. Því án fræðslu fá fordómar að þrífast og í þögguninni þrífst ofbeldi.“