Í skýjunum með þátttökuna í Menntafléttu

Fréttir|26. ágúst 2022

Um ellefu hundruð manns hafa skráð sig í Menntafléttu vetrarins. „Það er ljóst að kennarar landsins taka þessari tegund starfsþróunar fagnandi og skráningin varpar ljósi á þann óþrjótandi áhuga og neista sem kennarar búa yfir," skrifar Kolbrún Pálsdóttir, forseti Menntavísindasviðs HÍ. Hún segir aðstandendur Menntafléttu í skýjunum með þátttökuna.

Um 1.100 manns hafa skráð sig til leiks í Menntafléttu á komandi vetri. Síðastliðið voru höfðu rúmlega fimm hundruð leiðtogar lokið námskeiðum Menntafléttu. Næsta vetur mun helmingur leikskóla í landinu eiga þátttakendur í Menntafléttu, 72 prósent framhaldsskóla og 78 prósent grunnskóla. 

Þessar tölur koma fram í grein Kolbrúnar Pálsdóttur, forseta Menntavísindasviðs, sem birtist á Vísi í gær. Titill greinarinnar er Hvernig kennara viljum við?

Menntafléttan er samstarfsverkefni stjórnvalda, háskóla og Kennarasambands Íslands. Verkefnið felur í sér framboð á námskeiðum fyrir kennara og annað fagfólk í skóla- og frístundastarfi. 

Kolbrún segir í greininni að stuðningur stjórnvalda við Menntafléttuna hafi sannað sig svo um munar. „Miðað við árangur verkefnisins hingað til má auðveldlega ímynda sér hver margfeldisáhrif Menntafléttu geta orðið, ef við höldum áfram að tryggja vandað framboð námskeiða. Mikilvægt er að tryggja fjármögnun Menntafléttu næstu árin því starfsþróun kennara og starfsfólks í menntakerfinu er viðvarandi verkefni, ekki átak," skrifar Kolbrún. 

Góð þátttaka í Menntafléttu er ánægjuefni að sögn Kolbrúnar. „Það er ljóst að kennarar landsins taka þessari tegund starfsþróunar fagnandi og skráningin varpar ljósi á þann óþrjótandi áhuga og neista sem kennarar búa yfir," skrifar Kolbrún Pálsdóttir meðal annars. 

Í lok greinarinnar skorar Kolbrún, fyrir hönd aðstandenda Menntafléttu, á „stjórnvöld að fjárfesta í kennurum landsins og tryggja framtíð Menntafléttu". 

Lesa grein Kolbrúnar á Vísi