Í kennaraheiminum er þetta helst!

Við eigum að hætta að sturta öllum okkar vanda ofan í skólana og krefjast þess að þau sem þar starfi leysi málið á vettvangi eða finni leiðir til þess í kjarasamningum eða eigin starfsþróun. Við eigum, sem samfélag, að hætta að fela okkur í eigin vanmætti og taka á vandanum, kerfisbundið og skipulega. Kennarar hafa fyrir löngu gert allt sem hægt er að gera án aðkomu annarra ábyrgðaraðila. Nú þurfa fleiri að koma að borðinu. Hlutverk formanns KÍ er að leiða þá vinnu. Það vil ég gera.
Kæri kennari
Fátt er meira lýsandi fyrir þau viðhorf sem valdið hafa hinum alvarlega umhverfisvanda sem þjóðir heims standa frammi fyrir en orðtækið „Lengi tekur sjórinn við“. Manneskjan er auðvitað ógnarsmá í samanburði við óravíddir hafsins. Hvað þá þegar hún er borin saman við himininn. Það er hins vegar ekkert smátt við þau vandamál sem manneskjan er fullfær um að skapa.
Í dag myndi ekkert okkar taka svona til orða. Við vitum betur. Mér finnst samt stundum eins og hér á landi tíðkist annað slagorð. Alveg jafn vont. Það er: Lengi tekur skólinn við.
Vandinn
Síðustu áratugi hafa verkefni skólanna vaxið gríðarlega og nú er svo komið að starf kennarans snýr ekki aðeins að kennslu og skipulag hennar heldur þarf hann að finna leiðir til að mæta margvíslegum þörfum nemenda sinna. Í mörgum tilfellum þarf hann einnig að eiga í tíðum samskiptum við foreldra sem geta haft bæði væntingar og skoðanir sem erfitt er að mæta á uppbyggilegan hátt.
Alla líðandi öld hefur tímaleysi og álag einkennt starf kennara og stjórnenda. Sífellt fleiri glíma við langvarandi heilsubrest vegna starfs síns. Það er ljóst að kennarastarfið mun ekki einfaldast á næstunni því á sama tíma og kennurum fækkar er nemendum að fjölga. Mest hefur fjölgunin orðið í hópum barna sem eru af erlendum uppruna og í dag er það einn af okkar viðkvæmustu hópum í skólakerfinu.
Á síðustu árum tókst að snúa við þeirri þróun í kennaranámi að kennaranemum færi fækkandi. Þeim hefur fjölgað aftur. Það er í sjálfu sér gleðilegt en betur má ef duga skal. Kennarastarfið þarf að vera eftirsótt og eftirsóknarvert.
Álag á starfsfólk skólanna er, eins og loftslagsvandinn, sönnun þess að komið sé að þolmörkum. Það verður ekki lengur tekið við. Það eru skýrar vísbendingar um að skólinn sé oft á tíðum að taka upp slakann þar sem önnur kerfi samfélagsins gefa eftir. Slíkt gengur ekki upp til lengdar og það mun á endanum leiða til kerfishruns. Slíkt hrun verðum við að taka alvarlega, það er eins með menntakerfið og Jörðina: Þú þarft að fara vel með það eintak sem þú átt, þú kaupir ekki nýtt út í búð.
Lausnirnar
Vandi umhverfisins verður ekki leystur með góðum vilja. Það þarf vísindalegar og tæknilegar breytingar. Vandi skólakerfisins er sama eðlis. Lausn hans er ekki á valdsviði neins eins aðila. Hann verður aðeins leystur með því að beita að minnsta kosti þrenns konar lausnum, öllum á sama tíma.
Fyrsta tegund lausnar snýr að kennurum og stjórnendum. Hún snýr að vinnuvernd og líðan þessara hópa. Að hlúð sé að þeim í starfi, þeir séu metnir að verðleikum og njóti eðlilegra launa (sem ég mun ræða sérstaklega í næsta pistli). Gera þarf líkamlegri og andlegri heilsu kennara hærra undir höfði og bjóða upp á lausnir og úrræði sem hjálpa til þegar staðan er þung.
Önnur tegund lausnar snýr að skipulagi skólastarfs. Hópastærðir þurfa að vera eðlilegar og tryggt að húsnæði og námsumhverfi sér heilnæmt, öruggt og hentugt. Innan skóla þarf að vera styðjandi samfélag sem heldur utan um starfsfólk þegar þörf er á. Tími þarf að vera til faglegra starfa og rými til undirbúnings og úrvinnslu. Þar sem nemendahópar eru mjög litlir eða um einstaklingskennslu er að ræða þarf að gæta sérstaklega að því hvernig byggt er upp námssamfélag þeirra sem þar starfa.
Þriðja tegund lausnar nær til annarra samfélagskerfa. Á Íslandi hafa orðið tvö efnahagshrun á rúmum áratug. Í báðum tilfellum jókst álag mjög á skólakerfið. Covid er hvergi nærri lokið og við eigum eflaust enn eftir að greina fyllilega afleiðingar þess. Það er þó þegar ljóst að faraldurinn hefur haft skaðleg áhrif á andlega heilsu barna og ungmenna og skapað mikið álag í skólunum. Um bankahrunið vitum við meira. Sá niðurskurður sem varð vegna þess olli verulegum og að einhverju leyti óafturkræfum skaða. Það er dýrt að laga skólabyggingar sem illa var haldið við eftir bankahrunið. Það sjáum við nú. Enn dýrara er þó að mæta skaðanum af því þegar stuðningur við nemendur í vanda var skorinn við nögl. Börn og ungmenni eru ekki einkamál skólanna. Sá vandi sem til verður í lífi þeirra hefur félagslegar víddir, heilsufarsvíddir og efnahagslegar víddir sem leysa verður með viðeigandi lausnum.
Hlutverk Kennarasambands Íslands
Samtök kennara eru í lykilstöðu til að breyta þessu. Þess verður þó að gæta að kjarasamningar ná yfirleitt einungis yfir fyrri tvo þættina af því sem nefnt er hér að framan. Þar er samið um vinnuframlag, vinnuskipulag, laun og aðstæður. Kjarasamningar falla vissulega undir áhrifasvið kennarastéttarinnar og eru mikilvægir. Jafn mikilvægt er þó að skilja að kennarar verða að gera víðtækari kröfur á stuðning og lausnir en þær sem samið er um þar.
Af þessari ástæðu hefur Kennarasamband Ísland tvenns konar hlutverk. Hvorugt kemst af án hins. Í fyrsta lagi er það stéttarfélag kennara sem berst fyrir bættum kjörum og gætir réttinda. Það er hins vegar líka fagfélag. Formaður Kennarasambands Íslands er sá einstaklingur sem við kjósum til að flétta saman þessi svið. Á grundvelli faglegra sjónarmiða á að efna til samstarfs við stjórnvöld og samfélagið um hin ytri veruleika skólastarfs. Það er á þessum vettvangi sem hin þriðja stoð skólakerfisins er reist. Hún varðar okkar sameiginlegu hagsmuni, ekki aðeins sem kennara af ólíkum skólastigum og –gerðum, heldur sem fólks sem býr í samfélagi.
Hvernig formaður vil ég vera?
Ég vil vera formaður Kennarasambandsins til að geta látið til mín taka þegar kemur að því að bregðast við vandanum með heildstæðum og markvissum hætti. Ég vil flytja stjórnvöldum og samfélaginu þau skilaboð frá kennurum að ekki sé borð fyrir báru. Það þurfa fleiri kerfi að taka við vandanum en skólinn. Formenn aðildarfélaga KÍ stýra kjarasamningagerð og berjast fyrir bættum kjörum, vinnuaðstæðum og skipulagi (ég mun ræða í næsta pistli hvernig ég sé fyrir mér að standa við bakið á þeim í þeim málum). Kennarasambandið í heild verður að berjast fyrir þriðju leið lausna.
Verkefnin
Lykilatriði er að halda áfram að fjölga kennaranemum og efla menntun og starfsþróun kennara. Menntamálaráðherra næstu ríkisstjórnar þarf að hefja nýtt átaksverkefni í þeim efnum.
Ég hef reynsluna af því hvernig hægt er að koma þeim málum á hreyfingu í víðtæku samráði. Það þarf einnig að tengja þá vinnu sem átt hefur sér stað innan stjórnsýslunnar um málefni barna við skólakerfið með skynsamlegum hætti. Það er ekkert einfalt en gríðarlega mikilvægt!
Heilbrigðiskerfið og félagslega kerfið þurfa að taka sér skilvirkara hlutverk í stuðningi við börn og fjölskyldur þeirra. Ef upp koma áföll eigum við ekki aðeins að spyrja: Hvað getur skólinn gert? Við eigum að virkja öll okkar stuðningskerfi og nota þau.
Einnig þarf að fylgja eftir þeim áætlunum í aðgerðaráætlun menntastefnu, sem Kennarasambandið er einn höfunda að, sem lúta að endurhönnun stuðningsnets skóla í landinu. Biðlistum þarf að útrýma og rjúfa þarf endanlega tengsl greininga, fjármagns og vandamála. Vandi á ekki að uppfylla kerfisforsendur til að tekið sé á honum. Kennarar, nemendur og foreldrar eru fullfærir um að meta hvenær aðstoðar er þörf. Stjórnvöld verða enn fremur að skilja og standa undir ábyrgð sinni þegar kemur að skólaþjónustu og stuðningi. Sá stuðningur þarf að vera á landsvísu og óháður skólastigi.
Framhaldið
Næsti pistill minn, um efnahags- og kjaramál, verður birtur í næstu viku. Hafir þú hugleiðingar eða spurningar til mín vil ég gjarnan heyra frá þér. Þú getur til dæmis sent mér línu á anna@ki.is eða tengst mér á Facebook.
Anna María Gunnarsdóttir, er í framboði til formanns Kennarasambands Íslands