Í aðdraganda kjarasamninga

Fréttir|12. mars 2015

Í aðdraganda kjarasamninga, efnahagsumhverfi og launaþróun

Í febrúar sl. kom út skýrsla heildarsamtaka vinnumarkaðarins, Í að draganda kjarasamninga, efnahagsumhverfi og launaþróun. Markmiðið með útgáfunni er að gera upplýsingar um launaþróun liðinna ára og um helstu efnahagsstærðir öllum aðgengilegar.

Oddur S. Jakobsson, hagfræðingur KÍ

Helsta viðfangsefni þess hluta skýrslunnar sem fjallar um launaupplýsingar er greining á launaþróun stærstu launþegahópa landsins frá nóvember 2006 til september 2014. Félagsmönnum KÍ er í því samhengi skipt í tvo hópa. Annar hópurinn hefur ríkið sem sinn stærsta viðsemjanda (KÍ-ríki) en hinn hópurinn sveitarfélögin (KÍ-sv.fél.). Í fyrrnefnda hópnum eru því félagsmenn í Félagi framhaldsskólakennara og í Félagi stjórnenda í framhaldsskólum en í þeim síðarnefnda eru félagsmenn í Félagi grunnskólakennara, Félagi leikskólakennara, Félagi tónlistarskólakennara, Félagi stjórnenda leikskóla og Skólastjórafélagi Íslands.

Yfirlit yfir launaþróun níu hópa launþega frá nóvember 2006 til september 2014 má sjá í töflunni hér fyrir neðan. Laun ríkisstarfsmanna í stéttarfélögum innan ASÍ hafa hækkað mest á þessu tímabili, um 73,9%, en laun starfsmanna í aðildarfélögum BSRB hjá sveitarfélögum minnst, eða um 57,4%. Laun KÍ-ríkishópsins hækkuðu á þessu tímabili um 67,8% en laun KÍ-sv.fél.hópsins hækkuðu um 68,8% á sama tíma. Til samanburðar má sjá í dálkinum lengst til hægri í töflunni hvernig launavísitalan hefur breyst, en hún hækkaði um 63% á tímabilinu.


Nokkuð hefur verið um það rætt að undanförnu að kennarar (og læknar) hafi fengið meiri launahækkanir en aðrir í síðustu samningum. Það má til sanns vegar færa. Reglulegt tímakaup hjá KÍ-ríkishópnum hækkaði um 14,7% frá nóvember 2013 til september 2014 og um 11,1% hjá KÍ-sv.fél.hópnum. Þetta eru meiri hækkanir en hjá hinum hópunum sjö á því tímabili sem hér um ræðir. Ástæður þess eru nokkrar. Gert var ráð fyrir lengri samningstíma hjá KÍ-ríkishópnum og hjá fjölmennasta kennarafélaginu, Félagi grunnskólakennara (FG), heldur en hjá flestum öðrum hópum eða um 2½ ár á móti rúmu ári hjá öðrum. Auk þess var í kennarasamningunum gert ráð fyrir töluverðum breytingum á vinnumati en slíkar breytingar er almennt ekki að finna í öðrum samningum. Ennfremur má hafa það í huga að launaþróun kennara, sérstaklega þeirra sem starfa hjá ríkinu, hafði verið mun lakari en annarra hópa frá 2006 og fram að síðustu kjarasamningum (Nú liggur fyrir að KÍ-ríkishópurinn hafnaði þeirri útfærslu á vinnumati sem kosið var um en félagsmenn FG samþykktu nýtt vinnumat. Kjarasamningur KÍ-ríki er því laus um þessar mundir en kjarasamningur FG rennur út í lok maí 2016.)


Mynd 1 sýnir hvernig hækkanir milli tímabila frá nóvember 2006 til september 2014 hlaðast upp hjá níu hópum launamanna. Efstu hlutar súlnanna tveggja lengst til hægri sýna hækkanirnar frá nóvember 2013 til september 2014 hjá félagsmönnum KÍ sem fjallað er um hér að framan. Hækkanir af þeirri stærðargráðu sem þar um ræðir milli tímabila eru ekki einskorðaðar við félagsmenn KÍ eins og sjá má af myndinni. Einnig er fróðlegt að sjá að launahækkanir hjá hópum þar sem gert var ráð fyrir 2,8% almennri lágmarkshækkun í kjarasamningum urðu í flestum tilvikum töluvert umfram það. Þannig hækkuðu til að mynda laun fjölmennasta hópsins af þeim níu sem hér eru til skoðunar, þ.e. félagsmanna ASÍ á almennum markaði, um 5,1% frá nóvember 2006 til september 2014.
Eins og að framan greinir þá hækkaði reglulegt tímakaup hjá KÍ-ríkishópnum meðaltali um 14,7% frá nóvember 2013 til september 2014 og að meðaltali um 11,1% hjá KÍ-sv.fél.hópnum. Næstu tvær myndir, myndir 2 og 3, sýna hvernig launahækkanirnar dreifðust á hópana.


Mynd 2 sýnir dreifingu launahækkana hjá KÍ-ríkishópnum. Af henni má m.a. lesa að laun 59% af þeim hópi hækkuðu um 14% (13,5 til 14,5%) en 10% af hópnum fengu 16% launahækkun (15,5 til 16,5%). Meðalhækkunin var eins og fyrr segir 14,7%.
Eins og sjá má er mynd 3, sem sýnir dreifingu launahækkana hjá KÍ-sveitarfélagshópnum, mjög ólík mynd 2. Sú mikla dreifing launahækkana sem kemur fram á myndinni helgast af því að um fimm ólíka kjarasamninga er að ræða innan hópsins. Algengast er að laun í þessum hóp hækki um 16% (15,5 til 16,5%). Það á við um 17% af hópnum. Næst algengust er 7% launahækkun (6,5 til 7,5%). Meðal hækkunin var eins og fyrr segir 11,1%.


Í skýrslunni er að finna yfirlit yfir meðallaun og launadreifingar fyrir september 2014. Meðaltal reglulegra launa hjá KÍ-ríkishópnum var 455 þús. kr þann mánuð en meðaltalið hjá KÍ-sv.fél.hópnum var heldur lægra eða 424 þús. kr. Í síðarnefnda hópnum er fjölbreyttari blanda kennara og stjórnenda en í þeim fyrrnefnda. Launadreifingu hópanna má sjá á mynd 4.


Nokkrar fleiri niðurstöður sem finna má í skýrslunni má sjá hér fyrir neðan. Áhugasamir geta nálgast skýrsluna á heimasíðu KÍ, 
Oddur S. Jakobsson, hagfræðingur KÍ
 

{slider Samstarfsnefnd um launaupplýsingar og efnahagsforsendur kjarasamninga (SALEK)}

Stærstu aðilar á íslenskum vinnumarkaði, KÍ, BHM, BSRB, ASÍ, SA, fjármála- og efnahagsráðuneytið og Samband íslenskra sveitarfélaga standa sameiginlega að SALEK, samstarfsnefnd um launaupplýsingar og efnahagsforsendur kjarasamninga. Nefndin var stofnuð í júní 2013 að norrænni fyrirmynd en markmiðið með starfi hennar er að bæta þekkingu og vinnubrögð við undirbúning kjarasamninga og auka skilvirkni við gerð þeirra. Á vegum nefndarinnar hafa starfað tveir vinnuhópar; annar um launaupplýsingar og hinn um efnahagsforsendur kjarasamninganna. Hagfræðingur KÍ hefur tekið þátt í störfum beggja hópanna og hefur leitt vinnu hópsins um launaupplýsingar. Annað hefti ritsins Í aðdraganda kjarasamninga, efnahagsumhverfi og launaþróun með skýrslu vinnuhópanna kom út í febrúar 2015, en fyrra heftið var gefið út í október 2013.

{slider Nokkrar niðurstöður}

  • Laun kvenna hafa hækkað meira en karla á tímabilinu nóvember 2006 til september 2014.
  • Launadreifing hefur jafnast síðustu ár. Þannig hefur hlutfall launa 10% launalægstu af launum 10% launahæstu hækkað frá 2008.
  • Laun stjórnenda hafa almennt hækkað minna en laun annarra starfsstétta frá 2006 til 2014 en laun verkafólks mest.
  • Sé tekið mið af meðaltali tíu spáa um efnahagsþróun áranna 2015 og 2016 má búast við 3,2% hagvexti á ári, 3% verðbólgu og 3,5% atvinnuleysi.
  • Óvissa hér á landi um þróun efnahagsmála tengist einkum niðurstöðum komandi kjarasamninga, losun fjármagnshafta og uppgjöri þrotabúa föllnu bankanna.
  • Kaupmáttur ráðstöfunartekna hefur aukist hægar en kaupmáttur launa vegna lægri eignatekna í kjölfar hrunsins 2008 og þyngri byrða beinna skatta.
     

{/sliders}

Greinin birtist í Skólavörðunni, tímariti Kennarasambandsins. Lestu tímaritið í heild:

Skólavarðan í Apple-Store

Skólavarðan í Google Play

Skólavarðan á netinu