Hvítbók menntamálaráðherra
Menntamálaráðherra fundar nú víða um Hvítbók sína. Daglega eru nú haldnir fundir um innihald Hvítbókar og leitast við að svara spurningunni um hvernig við getum bætt menntun barna okkar.
Hvítbók var lengi í fæðingu og var loksins lögð fram nú í vor. Enginn höfundur eða ritstjóri er skráður ábyrgur fyrir Hvítbókinni og hvergi er vitnað beint í heimildir.
Í hvítbók eru sett fram eftirfarandi markmið;
- Hlutfall þeirra sem ljúka prófi á tilsettum tíma fari upp í 60% árið 2018
- Hlutfall þeirra sem ná grunnviðmiðum í lesskilningi PISA fari úr 79% í 90% árið 2018
- Stytta nám til lokaprófs
- Draga úr brotthvarfi
- Breyta skipulagi starfsmenntunar
- Nám til stúdentsprófs miðist við 3ja ára námstíma
Kennarasamtökin hafa ítrekað óskað eftir fundi með ráðherra til að ræða innihald Hvítbókar. Svo einkennilega sem það hljómar þá virðist ráðherra hafa kosið að sniðganga stéttar- og fagfélög kennara á öllum skólastigum.
Í Hvítbók eru reifaðar hugmyndir um grundvallarbreytingar á innihaldi náms til stúdentsprófs. Jafnframt er sá kostur nefndur sérstaklega að takmarka aðgengi 25 ára og eldri nemenda inn í framhaldsskólann.
Nýlega framlagt fjárlagafrumvarp styður við markmið Hvítbókar um skerðingu náms á framhaldsskólastigi og takmarkað aðgengi. Enn er skorið niður til framhaldsskólans og gert ráð fyrir 5% fækkun nemenda.
Svo virðist sem menntamálaráðherra sé þegar búinn að taka ákvörðun um meginbreytingar á íslenska framhaldsskólastiginu. Slík ákvörðun hefur verið tekin í einhverju bakherberginu og óljóst hverjir voru þar viðstaddir. Að minnsta kostir var þar enginn fulltrúi Kennarasambands Íslands.
Hér hefur verið tekin pólitísk ákvörðun – án alls samráðs við fagstéttirnar sem best og gleggst þekkja skólastarf í landinu. Með allri virðingu fyrir fjölmörgu áhugafólki um nám og skólastarf – vill bara þannig til að kennarar vita betur í krafti menntunar sinnar og reynslu.
Sú vegferð sem virðist vera hafin í átt að meginbreytingum á íslensku skólakerfi – er ekki vænleg til farsældar ætli menn að hunsa ábendingar og ráðleggingar þeirra sem vita og kunna. Slíkt ferðalag verður ekkert annað ein sneypuför og minnisvarði um gamaldags vinnubrögð.
Guðríður Arnardóttir, formaður Félags framhaldsskólakennara