Hvetur kennara til að taka sér rými

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, þingmaður og fyrrverandi menntamálaráðherra, var gestur Magnúsar Þórs Jónssonar, formanns KÍ, í öðrum þætti Kennaravarpsins.
„Akademískt frelsi skiptir mjög miklu máli á öllum skólastigum. Við erum þá að tala um leik-, grunn-, framhaldsskóla og háskólann. Það sem ég sé koma í gegnum akademískt frelsi er skólaþróun, en líka að þar er verið að kenna nemendum gagnrýna hugsun. Það er ekki síst akademíska frelsið sem ýtir undir gagnrýna hugsun sem ýtir undir samfélagið, ekki síst lýðræðissamfélagið," segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, þingmaður, formaður Viðreisnar og fyrrverandi menntamálaráðherra, í viðtali í Kennaravarpinu sem var birt fyrr í dag. Hún bætti við nauðsynlegt væri að standa með skólunum þegar kemur að hinu akademíska frelsi.
Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ, ræddi um kennarastarfið, skólaþróun og fleira við Þorgerði. Margt bar á góma í spjallinu og var meðal annars rætt um álag sem margir kennarar búa við í starfi. „Álagið á kennurum er alveg rosalega mikið," segir Þorgerður og bætir við þar megi horfa til samfélagsmiðlaáreitis og þeirra krafna sem eru gerðar í dag. Þar á hún við þætti sem aðrir eiga að sinna og þar með veita kennurum stuðning.
Þorgerður hvetur kennarastéttina til að taka sér rými á grunni þeirrar þekkingar og reynslu sem kennarar hafa sankað að sér. „Valfrelsi skiptir okkur öll máli og mér finnst dýrmætt að sjá mismunandi áherslur á milli skóla þar sem hvert teymi innan skólans hefur mótað sína stefnu. Við þurfum að hvetja kennarana til að gera slíkt áfram," segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir í Kennaravarpinu.
Kennarasambandið ætlar að miðla efni í myndbandaformi á næstu mánuðum og misserum. Markmiðið er að leyfa röddum kennara hérlendis að hljóma, efna til umræðu um kennarastarfið, áskoranir í skólamálum, starfsaðstæður, fagmennsku, stöðu nemenda með ólíkan bakgrunn og svo mætti áfram telja. Ráðherra menntamála, Ásmundur Einar Daðason, var í viðtali í Kennaravarpinu í gær.
Kennaravikan og þættirnir tíu
Uppleggið í kennaravikunni eru tíu punktar sem ETUCE hefur sent frá sér og er ætlað að kveikja umræður um hvað skiptir mestu máli þegar kemur að því að styðja og styrkja kennara í starfi, bera virðingu fyrir fagmennsku þeirra, gæta að starfsumhverfi og kannski ekki síst hvernig gerum við kennarastarfið aðlaðandi þannig að nýliðun sé nægileg.
Lykilatriði ETUCE eru tíu talsins og tala vel inn í íslenskan veruleika.
- Tryggja faglegt sjálfstæði og akademískt frelsi skólafólks.
- Hafa samvinnu og sameiningu að leiðarljósi við störf innan menntastofnana og -‐kerfa.
- Bjóða mannsæmandi laun og koma í veg fyrir launamisrétti.
- Tryggja góð og traust vinnuskilyrði og stuðla að velferð kennara.
- Stýra vinnuálagi og vinnutímum.
- Skapa vinnuumhverfi sem laðar að nýliða og stuðlar að því að starfsfólk haldist í starfi.
- Tryggja rétt til vandaðrar kennaramenntunar og stöðugrar starfsþróunar.
- Fást við áskoranir á sviði jafnréttismála innan kennarastéttarinnar.
- Stuðla að virkri og faglegri umræðu.
- Valdefla kennarastéttina.
Lesa meira um lykilatriðin tíu og hvað býr að baki þeim.
Tökum þátt!
Kennarasambandið hvetur félagsfólk til að taka þátt í umræðum um starfið sitt, leggja orð í belg og segja frá sínu eigin starfi. Samfélagsmiðlarnir eru góður vettvangur fyrir slíkt og mælst er til þess að færslur séu merktar með myllumerkinu #kennaravikan.
Fleiri þættir Kennaravarpsins eru væntanlegir á næstu dögum. Ekki missa af!