Hvetja til samráðs við fagfólk leikskólanna

Fréttir|1. júní 2022

Aðalfundur Félags stjórnenda leikskóla hvetur nýjar sveitarstjórnir til að nýta fagþekkingu félagsmanna í FSL og FL þegar kemur að umræðu um breytingar á starfsemi leikskólans. Aðalfundurinn hvetur jafnframt Samband íslenskra sveitarfélaga til að ganga til samninga við félagið, en síðasti kjarasamningur rann út um áramót.

„Mikilvægt er að nýta faglega þekkingu þessara hópa á starfi leikskóla í stað þess að láta vanhugsaðar hugmyndir stýra för þegar ákvarðanir eru teknar,“ segir í ályktun aðalfundar Félags stjórnenda leikskóla, sem fram fór 12. þessa mánaðar.

Þarna er um að ræða hvatningu til nýrra sveitarstjórna um hafa samráð og samstarf við Félag stjórnenda leikskóla og Félag leikskólakennara varðandi hugmyndir um breytingar á starfsemi leikskóla. Er hér átt við breytingar sem hafa áhrif á starfsumhverfi kennara og stjórnenda í leikskólum og um leið á námsumhverfi barna.

Í greinargerð með ályktuninni segir að leikskólastigið hafi vaxið hratt síðustu ár og meginástæðu þess megi rekja til þess að leikskólarnir taka við æ yngri börnum. Þörf sé á vandaðri umræðu; „á sama tíma heyrast hugmyndir um að færa fimm ára börn yfir í grunnskólann, lengja opnunartíma leikskóla og draga úr sumarlokunum eða afnema þær alveg. Þessar hugmyndir kalla á mjög aukinn fjölda kennara sem er ekki til staðar í dag. Þetta eru stór mál sem þarfnast ígrundaðrar umræðu,“ segir í greinargerð aðalfundar FSL.

Á aðalfundinum kom fram að mikilvægt er að tryggja góðar starfsaðstæður í leikskólum og búa börnum aðstæður til að njóta gæðanáms eins og lög kveða á um.

 „Jafnframt vill Félag stjórnenda leikskóla ítreka að leikskólinn er fyrsta skólastigið samkvæmt lögum og hlutverk hans er að tryggja börnum gæðamenntun, uppeldi og umönnun með hliðsjón af aldri þeirra og þroska,“ segir í ályktun aðalfundarins.

Gengið verði til samninga

Aðalfundur Félags stjórnenda leikskóla hvetur jafnframt Samband íslenskra sveitarfélaga til að ganga til samninga við félagið. Félag stjórnenda leikskóla hefur verið samningslaust frá áramótum en þá rann síðasti samningur út. Þetta kemur fram í ályktun aðalfundarins.

Að síðustu skal nefnt að aðalfundur FSL sendi stjórn og samninganefnd félagsins hvatningu um að huga vel að starfsumhverfi aðstoðarleikskólastjóra við samningaborðið. „Mikilvægt er að starf aðstoðarleikskólastjóra sé eftirsóknarvert  bæði hvað varðar starfsaðstæður og launakjör,“ segir í ályktun fundarins.

Aðalfundur Félags stjórnenda leikskóla fór fram á Grand Hótel Reykjavík fimmtudaginn 12. maí 2022. Þetta var fjórði aðalfundur félagsins en aðalfundir fara fram á fjögurra ára fresti.

Ályktanir aðalfundar FSL hljóða svo

Ályktun um samráð og samstarf

Aðalfundur Félags stjórnenda leikskóla, haldinn 12. maí 2022, hvetur nýjar sveitarstjórnir til að hafa samráð og samstarf við Félag stjórnenda leikskóla og Félag leikskólakennara varðandi hugmyndir um breytingar á starfsemi leikskóla. Er hér átt við breytingar sem hafa áhrif á starfsumhverfi kennara og stjórnenda í leikskólum og um leið á námsumhverfi barna.

Mikilvægt er að nýta faglega þekkingu þessara hópa á starfi leikskóla í stað þess að láta vanhugsaðar hugmyndir stýra för þegar ákvarðanir eru teknar.

Jafnframt vill Félag stjórnenda leikskóla ítreka að leikskólinn er fyrsta skólastigið samkvæmt lögum og hlutverk hans er að tryggja börnum gæðamenntun, uppeldi og umönnun með hliðsjón af aldri þeirra og þroska.

Samþykkt á aðalfundi FSL 12. maí 2022

Ályktun um kjaramál

Aðalfundur Félags stjórnenda leikskóla, haldinn 12. maí 2022, hvetur Samband íslenskra sveitarfélaga til að ganga til samninga við Félag stjórnenda leikskóla strax. En það er annað af tveimur félögum innan KÍ sem hefur verið samningslaust síðan samningar runnu út 31. desember 2021.

Samþykkt á aðalfundi FSL 12. maí 2022

Ályktun um starfsaðsæður aðstoðarleikskólastjóra

Aðalfundur Félags stjórnenda leikskóla, haldinn 12. maí 2022, hvetur stjórn og samninganefnd Félag stjórnenda leikskóla og rekstraraðila að huga vel að starfsumhverfi aðstoðarleikskólastjóra við samningaborðið. Mikilvægt er að starf aðstoðarleikskólastjóra sé eftirsóknarvert  bæði hvað varðar starfsaðstæður og launakjör.

Samþykkt á aðalfundi FSL 12. maí 2022