Hvetja sveitarfélög til að semja við tónlistarskólakennara

Fréttir|22. desember 2016

FG, FL og FF skora á sveitarfélögin að semja við FT.

Félag grunn- leik- og framhaldsskólakennara skora á sveitarfélögin í landinu að gera allt sem í þeirra valdi stendur að ná samningum við tónlistaskólakennara. Nú hafa samningar verið lausir í 1 ár og löngu orðið tímabært að finna viðunandi lausnir á kjaradeilunni. Það er ekki verjandi að tónlistaskólakennarar líði lengur fyrir langt samningsleysi.