Hvetja ráðherra til að hægja á áformum um sameiningu

Skólamálanefnd Félags framhaldsskólakennara hvetur ráðherra menntamála til samvinnu við fagstéttir og hagaðila er kemur að þróun framhaldsskólastigsins. Nefndin sendi ráðherra bréf fyrr í dag.
„Skólamálanefnd Félags framhaldsskólakennara mótmælir vinnubrögðum mennta- og barnamálaherra og stýrihóps um eflingu framhaldsskóla í tengslum við áform um sameiningu tveggja framhaldsskóla." Á þessum orðum hefst bréf sem skólamálanefnd Félags framhaldsskólakennara (FF) sendi Ásmundi Einari Daðasyni, mennta- og barnamálaráðherra, fyrr í dag.
Víð er komið við í bréfinu og meðal annars viðraðar áhyggjur af því að í skýrslu stýrihóps ráðuneytisins komi fram tillaga um að fækka stöðugildum náms- og starfsráðgjafa innan nýs 1.800 nemenda framhaldsskóla. Er hér vísað til þess að ef af sameiningu Menntaskólans á Akureyri og Verkmenntaskólans á Akureyri verði þá muni sá skóli hafa 1.800 nemendur innanborðs.
„Það er ljóst að náms- og starfsráðgjafar munu ekki geta veitt 1.800 nemendum persónulega þjónustu ef aðeins verður um tvö stöðugildi að ræða. Einnig er nefndin á þeirri skoðun að hér sé farið gegn farsældarlögum þar sem lagt er til að aðgengi barna og ungmenna að þjónustu verði aukið," segir orðrétt í bréfi nefndarinnar. Þá er það mat skólamálanefndar að sú að aðgerð að fækka stöðugildum og þynna þar með út þau stuðningsteymi sem nú má finna í framhaldsskólum landsins muni ekki leiða til aukinnar farsældar í framhaldsskólakerfinu.
„Ekki verður heldur fram hjá því horft að efla þarf samvinnu framhaldsskólakennara við starfsfólk innan skólanna sem er með sérhæfðari menntun (t.d. sérkennara, þroskaþjálfa, sálfræðinga, iðjuþjálfa og náms- og starfsráðgjafa). Það krefst aukins fjármagns en ekki minna og verður síst einfaldara í stórum skólum en smærri," segir jafnframt í bréfinu.
Skólamálanefnd FF skorar á mennta- og barnamálaráðherra að hægja verulega á áformum um sameiningu framhaldsskóla. Mat skólamálanefndar er að áform um sameiningu MA og VMA séu illa ígrunduð og „ekki til þess fallin að tryggja námsöryggi og vellíðan nemenda".
Þess í stað er ráðherra menntamála hvattur til að viðhafa samráð og samvinnu við fagstéttir og alla hagaðila um þróun framhaldsskólastigsins.